AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 20

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 20
að hluta eða öllu leyti á tveim hæðum og þar með er hægt að hækka húsin. Þar sem grafa þarf 5 m niður næst tveggja hæða bílageymsla undir öllu húsinu og undir bílastæðinu. Þar er hægt að koma fyrir 40 bílastæðum neðanjarðar. Á þessum svæðum væri hægt að fara með húsin í 8 hæðir sem þýddi í dæminu hér að ofan að á hverri 1.000 m2 lóð væru 24 íbúðir (48 bílastæði) og nýtingar- hlutfall lóðar 2,4. Eftir sem áður væru einungis 10 bílastæði ofanjarðar og garðurinn við húsin áfram 430 m2. Ef sex slík hús standa saman og mynda lengju eða U eins og t.d. í Hraunbænum þá mynda þau saman garð sem væri 2.580 m2. BYCGÐ Á STÆRO VIO KOPAVOC Ef við höldum áfram með þessa einföldu reikn- inga okkar og gerum ráð fyrir að íbúðabyggðin sé að jafnaði 7 hæða hús, þá er nýtingarhlutfallið að meðaltali 2,1 á hverri lóð. Með sömu forsendum og fyrr, þá væri hægt að byggja 1.176.000 fer- metra af íbúðarhúsnæði (bílageymslur neðan- jarðar ekki inni í þessum reikningum) á þessum 56 hekturum. Þetta samsvarar 11.760 stk af 100 m2 einingum (íbúðum). Með sömu forsendum og áður samsvarar þetta að í Vatnsmýrinni gætu búið 28.200 til 31.800 manns. Þetta þýðir að heild- arnýting á íbúðasvæðinu (80 ha) verður 1,47. Út frá ofangreindum forsendum höfum við kynnt að við viljum byggja 20 til 30 þúsund manna byggð í Vatnsmýrinni. Hvort talan verður nær 20 eða 30 þúsund manns fer eftir hve stórar íbúðirnar verða. Ef þær verða að meðaltali 140 m2 með sameign en ekki 100 m2, þá lækka ofangreindar tölur og íbúafjöldinn yrði 15.000 (í 5 hæða hverfinu) og til 21.000 manns (í 7 hæða hverfinu). Bílastæðum myndi þá fækka að sama skapi. FLUGVÖLLURINM Um 700 m vegur verður lagður frá landi frá Suð- urgötu á móts við enda núverandi AV brautar að nýju flughlaði. Fyrsta skrefið er að gerðir verði grjótgarðar sem mynda útlínur vallarins. Fyllt verði upp milli þessara garða með því að dæla inn sjáv- armöl. Gert er ráð fyrir þrem brautum eins og er í dag. Þeim verði snúið aðeins miðað við núverandi legu, þannig að aðflugið verði ekki yfir byggð nema í mikilli hæð. Á AV brautinni verður aðflugið yfir Fossvogshverfið og síðan eftir norðurströnd Fossvogs. íbúar í Fossvogi verða því varir við flugið með svipuðum hætti og í dag. Aðflugs- stefnan á norður /suður braut verður yfir ysta hluta Seltjarnarness og fara flugvélar þar yfir í svipaðri hæð og nú er í Fossvogi. Miðbærinn mun losna við alla hávaðamengun frá flugvellinum. Ástandið á Skildinganesi mun einnig batna þar sem fjar- lægð flugvallarins frá hverfinu eykst. STAÐSETMING FLUGVALLARINS OG FUGLARNIR Flugtæknilega er staðsetning flugvallar úti í Skerjafirði betri kostur en núverandi staðsetning eins og Ómar Ragnarsson fréttamaður hefur bent á. Benda má á að braut sem byggð yrði úti í Skerjafirði yrði alveg lárétt eins og bestu flugbraut- ir landsins. Margir flugvellir hér á landi, og þar á meðal er völlurinn í Vatnsmýrinni, eru með breyti- legan langhalla. Hvað varðar umræðu um hugsan- leg vandkvæði með fugla á flugvelli í Skerjafirði þá er rétt að benda á að núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar er ein sú óheppilegasta sem hægt er að finna á Höfuðborgarsvæðinu með tilliti til fugla og hættu á árekstrum við þá. NS brautin er með aðflug yfir eina þéttustu fuglabyggð landsins, Tjörnina í Reykjavík. AV brautin er með aðflug yfir eitt stærsta samfellda trjábeiti á Höfuðborgar- svæðinu, Öskjuhlíðina og kirkjugarðinn. Báðar þessar brautir liggja nánast út í sjó og þar eru grunnfjörur með miklu dýralífi, þar eru matarkistur sjófugla, vaðfugla o.fl. Að flytja flugvöllinn út í Skerjafjörðinn mun einungis bæta þetta ástand og auka öryggi flugfarþega. BRIM OG SJÁVARSELTA Staðsetning flugvallar á Skerjafirði við Löngu- sker og Hólma er frá náttúrunnar hendi ákjósan- leg. Það er engin tilviljun að menn hafa horft til þess að gera flugvöll á þessum stað í áratugi. Trausti Valsson kynnti og útfærði hugmyndir að flugvelli úti í Skerjafirði upp úr 1970 og verk- fræðingarnir Steingrímur Hermannsson og Guð- mundur G. Þórarinsson lögðu fram tillögu á þingi 1975 að flugvöllurinn yrði fluttur þangað. Meðal- dýpi undir vellinum þar sem hann á að koma er um 2,5 metrar. Töluvert utar liggur svo Valhúsagrunn- ið, skerjagarður sem liggur frá Gróttu suður undir Hafnarfjörð. Mynni Skerjafjarðar er girt af með skerjum og boðum og er dýpi þar mest 5 til 10 metrar og víða eru þessir boðar og sker upp úr sjó. Þetta þýðir að það mikla brim og þær miklu öldur sem leika hér um strendur landsins ná aldrei inn í Skerjafjörðinn. Þær brotna allar þegar þær fara yfir Valhúsagrunnið á leið sinni inn 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.