AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Blaðsíða 12

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Blaðsíða 12
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON, VERKFRÆÐINGUR HVALFJARÐARGONG erinkaframkvæmd FORSAGAN Eitt frægasta mannvirki síöustu ára hér á landi eru Hvalfjarðargöngin. Líklega hefur meirihluti landsmanna farið um þessi göng og vart er til sá fullvaxta íslendingur, sem ekki hefur rætt um þessi merku göng. Frá því upphaflega var farið að kanna mögulega þverun utanverðs Hvalfjarðar hafa a.m.k. verk- og tæknifræðingar verið áhugasamir um þessa samgöngubót. Eins og gefur að skilja hafa menn verið með og á móti og sumir reyndar spáð hraklega fyrir þeirri fram- kvæmd, sem ofan á varð, þ.e. jarðgöngum í bergi undir fjörðinn. í byrjun áttunda áratugarins var gerð frumat- hugun á möguleikum þess að stytta leiðina vestur og norður með þverun Hvalfjarðar. Ýmsir kostir voru kannaðir og m.a. var ferjutenging könnuð sérstaklega. Niðurstaða þeirrar athugunar varð sú að ekki væri ráðlegt að framkvæma neinn af þeim kostum, sem skoðaðir voru. Til þess var umferðin of lítil til að standa undir fjárfesting- unum, sem á þeim tíma hefðu kostað mun meira en síðar varð með þróaðri tækni. Þá er þess að geta að enn var hringvegi ekki lokið um Skeiðar- ársand né komin brú á Hvítá við Borgarnes. Einnig var harla lítill hluti þjóðveganna kominn með bundið slitlag, aðeins Keflavíkur- vegurinn og hlutar Suðurlandsvegar, auk þess sem byrjað var á framkvæmd- um á Vesturlandsvegi um Mosfellssveit og upp á Kjalarnes. Og miðað við að vegaframkvæmdir voru á þeim árum fjármagnaðar með lánsfé eða beint úr ríkissjóði var ekki von til þess að þverun Hvalfjarðar utanverðs væri framarlega í röðinni þegar kom að samgöngubótum hér á landi. UNDIRBÚNINGURINN AÐ GERD HVALFJARÐARGANGA En tíminn leið og dustað var rykið af hugmyndunum um þverunina og ýmis- legt um hana rætt og ritað á árunum um og fyrir 1990. Helstu þáttaskil urðu þegar Vegagerð ríkisins birti skýrslu árið 1987, þar sem fram kom að það væri að öllum líkindum þjóðhagslega hagkvæmt að gera göng undir Hval- fjörðinn utanverðan og e.t.v. einnig að byggja þar brú. Þá voru ekki taldar nein- ar tæknilegar hindranir fyrir slíkri fram- kvæmd. Á næstu árum var málið víða rætt meðal landsmanna, en ekki virtist mikill áhugi á því meðal ráðamanna þjóðarinnar að binda fé vega- sjóðs við slíka framkvæmd, sem kosta myndi meira en 5 milljarða, og á sama tíma draga úr nýframkvæmdum í vegamálum á landsbyggðinni. Hin tæknilega hlið umræðunnar var aðallega meðal verk- og tæknifræðinga hér á landi og var m.a. fjallað um málið hér í þessu blaði. Ýmsar ráðstefnur voru haldnar um þverun Hvalfjarðar, þarsem mismunandi kostirvoru ræddir, botngöng, jarðgöng og brú. Það var síðan í janúar 1991 að Spölur hf. var stofnaður sem hlutafélag í eigu nokkurra fyrirtækja, sveitarfélaga og Vegagerð- arinnar, og var tilgangur þess að hrinda í framkvæmd þverun Hvalfjarðar utanverðs. Áður 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.