AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Blaðsíða 39
Lagt er til að gerður verði nýr inngangur sunnan
við núverandi sturtuklefa, bæði fyrir almenna
sundgesti og áhorfendur að keppnum. Aðkoma
sundgesta að laugum er þó óbreytt. Milli inngangs
og laugarhúss er sporöskjulaga rými með aðstöðu
starfsfólks, salernum áhorfenda, geymslum o.s.frv.
Áhorfendur ganga um rampa að áhorfendasvæði
sem fylgir boga hússins að utanverðu. Andspænis
áhorfendasvölum er gluggi eftir endilangri norður-
hlið að garði. Útgangur, auk inngangs, er til aust-
urs og niður rampa til vesturs að bílastæðum.
Heilsuræktarstöð tengist keppnislaug að austan-
verðu um inngang er snýr til suðurs að bílastæð-
um Laugardalsvallar.
Við mótun bygginga og garðs var unnið út frá
ákveðinni hugmynd um laugarnar sem heilsulindir.
Lokaði garðurinn er e.k. líking við vinjar eyðimerk-
urinnar þar sem trjálundir myndast umhverfis upp-
sprettur. Hringform og sporaskja verða þannig
ráðandi form sem endurtaka sig í gróðri og mann-
virkjum. Lögð var áhersla á að hafa bygginguna
lágreista til að skyggja ekki á garðinn og fella hana
sem mest í gróður dalsins. Til að halda samræmi
og heildarsvip hefur hún sömu hæð inn að garði
en að utanverðu stallast hún í hæð og grunnfleti
enda er gert ráð fyrir miklum trjágróðri sunnan
hennar. Að garðinum er byggingin timburklædd til
að styrkja náttúrlegt yfirbragð hans en að utan er
reynt að ná sem mestu samhengi við núverandi
byggingar.
Ætlun höfundar er að tillaga þessi sýni nýja
möguleika í þróun sundlauga hér á landi með
samnýtingu við fjölbreytta heilsuræktarþjónustu
sem laði fleiri gesti að laugunum og geri þær að
heilsulindum í þess orðs fyllstu merkingu.
Höfundur: Ari Már Lúðvíksson, arkitekt, ráðgjöf: Helga
Guðrún Helgadóttir, myndlistarmaður. ■
GRP • DOORS
L A M I
LAMI trefjaplasthurðir (Glass reinforced
polyester) henta allstaðar í húsum þar sem
áreiti er mikið vegna raka og vatns og þar
sem mikils hreinlætis er krafíst.
LAMI hurðir henta í:
□ • Matvælaiðnað t.d. í sláturhús, fiskvinnsluhús o.fl.
• Lyijaiðnað t.d. í rannsóknarstofur, verksmiðjur o.fl.
• Matvörubúðir t.d. í kæliherbergi o.fl.
• Spítala t.d. í skurðstofur og sjúkraherbergi
• Skóla og íþróttahús t.d. í baðherbergi, búnings- og
sturtuklefa.
• Veitingahús t.d í eldhús, kæligeymslur o.fl.
• LAMI hurðir er hægt fá með mismunandi könnum t.d. úr áli, ryðfríu stáli
eða með trefjaplasthúð.
• LAMI hurðir er hægt að fá hliðhengdar og sem renni- og sveifiuhurðir
• LAMI huðir er hægt að fá eldtefjandi.
• LAMI hurðir er hægt fá með sérstakri sýkla- og sveppavöm.
• LAMI hurðir er hægt fá með gleri og einnig með eða án felliþröskulda.
• LAMI hurðir eru léttar og öruggar í notkun
SUPERBYG A
Superbyg ísland Bæjarhraun 8 220 Hafnartjörður. Sími 555-6080 Fax 555-6081.