AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Blaðsíða 26
kröfulýsingu. Kröfulýsing þarf einnig að vera í
samræmi við þær reglur sem gilda um útboðs-
lýsingar og opinber innkaup. Um einkaframkvæmd
gildir tilskipun Evrópusambandsins nr. 50/92 um
útboð á þjónustu.
Góð kröfulýsing þarf að:
I Skilgreina þarfir vel. Eftir hvaða þjónustu er
verið að leita?
I Skilgreina hvað ríkið vill fá en ekki hvernig það
skuli leyst. Leyfa á svigrúm til að útfæra lausnir.
I Gefa nægilegar upplýsingar til þess að bjóð-
andi geti metið kostnað og ákveðið hvort hann
tekur þátt í útboðinu.
I Gæta að því að jafnræði sé milli allra þeirra
sem bjóða vilja þjónustu sína.
I Tilgreina þau atriði sem eru höfð að leiðarljósi
við val á samningsaðila.
I Upplýsa um hvernig eftirliti með efndum samn-
ings verður háttað.
Á HVAÐA SVIÐUM NÝTUR EINKA-
FRAMKVÆMD SÍN BEST?
Framan af voru aðferðir einkaframkvæmdar fyrst
og fremst notaðar í samgöngumannvirkjum.
Einkaframkvæmd hentar vel á því sviði. Um er að
ræða umfangsmiklarfjárfestingarsem hafa langan
líftíma, áhætta er fremur lítil, rekstur ekki flókinn
og auðvelt að koma við gjaldtöku.
Hins vegar er styttra síðan farið var að notast við
einkaframkvæmd á öðrum sviðum í nágranna-
löndunum. Hér á eftir eru nefnd dæmi um verkefni
sem leysa má með einkaframkvæmd en listinn er
á engan hátt tæmandi:
Vegir, brýr og jarðgöng
Á þessu sviði er einkaframkvæmd algengust. Hér
á landi hefur þetta form verið notað við gerð
Hvalfjarðarganga og gefist vel. Næsta stóra
verkefni á þessu sviði verður hugsanlega Sunda-
braut.
Flugvellir og flugstódvar
Rekstur þeirra og uppbygging er fjárfrek og hefur
hann víða erlendis verið falinn einkaaðilum.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar er dæmi um verkefni
þar sem einkaframkvæmd hefði notið sín vel, svo
og endurnýjun og rekstur Reykjavíkurflugvallar
Hafnir
Víða erlendis annast einkafyrirtæki uppbyggingu
og rekstur hafna. Mörg dæmi eru um að hafnir séu
hlutafélög. Hér á landi er þess alveg sérstaklega
gætt í hafnalögum að einkaaðilar geti hvergi komið
að fjárfestingu og rekstri. Allar nýjungar í fjármög-
nun og rekstri hafna með þátttöku einkaaðila eru
nánast bannaðar samkvæmt lögum.
Veitur, orkufyrirtæki og fjarskipta-
fyrirtæki
Á þessu sviði er víða verið að endurskipuleggja
starfsemina og innleiða samkeppni, en þó þannig
að flutningskerfin séu áfram í eigu hins opinbera.
Á þessu sviði má sjá fyrir sér mörg verkefni í
einkaframkvæmd. Athyglisvert er að hér á landi,
þar sem orkulindirnar eru mjög verðmæt auðlind,
hefur hið opinbera gætt þess alveg sérstaklega að
skapa hvergi tækifæri fyrir einkaaðila í fjárfesting-
um og rekstri. Þess hefur líka verið vel gætt að
skapa einkaaðilum hvergi tækifæri til að koma að
fjárfestingum og rekstri vatnsveitna og fráveitna.
Skrifstofubyggingar
Fjárfesting hins opinbera í skrifstofuhúsnæði er
gríðarleg en það dregur úr þeim sveigjanleika sem
leiguhúsnæði hefur upp á að bjóða. Langtíma-
leigusamningur er í raun samningur um einka-
framkvæmd. Húsnæði, sem þarfnast umtalsverðra
endurbóta, má selja einkaaðila sem hluta af
samningi um einkaframkvæmd sem fæli í sér end-
urbyggingu og leigusamning til nokkurra ára. Auk
þess mætti, með sama samningi, fela seljanda að
annast ýmsa stoðþjónustu í byggingunni.
Fangelsi
hafa verið færð í hendur einkaaðila í öðrum
löndum, ýmist með einkaframkvæmd eða útboð-
um á rekstri.
Söfn
Fela má einkaaðilum að annast uppbyggingu
og rekstur safna.
Skólar
Fela má einkaaðilum uppbyggingu og rekstur
skólamannvirkja á öllum skólastigum, jafnvel sjálft
skólastarfið. Rekstur leikskóla hefur verið boðinn
út til einkaaðila með góðum árangri.
Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar
Rekstur og bygging þeirra er umfangsmikið
verkefni sem fallið getur ágætlega að þessum
aðferðum. Ef ekki er áhugi á að fela verktaka
lækningaþáttinn eða hjúkrun, má í það minnsta
fela honum ýmsa stoðþjónustu, t.d. rekstur eld-
húss og þvotta, þrif, öryggisgæslu, tölvuþjónustu,
húsvörslu o.fl.
Dvalarheimili aldraðra og hjúkrunar-
heimili
Eftir því sem þjóðin eldist eykst þörfin fyrir sér-
hönnuð híbýli fyrir aldraða. Það má fela einka-
aðilum að annast uppbyggingu og þjónustu á
24