AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Blaðsíða 70
Tiliaga 16559 - 1. sæti Höfundar: Birgir Teitsson og Pálmar Kristmundsson, arkitektar.
Höfundum hefur tekist að leysa tæknilega uppbyggingu burðarvirkis á viðunandi hátt.
Útfærsla á veggskermi er með ágætum. Áfangaskipting byggingar hefur þó ekki tekist. Er hún
jafnvel verri en í fyrra þrepi. Óásættanlegt er að taka farþega inn í mitt rými byggingar eins og
sýnt er í 1. áfanga. Það veldur mikilli röskun á starfsemi flugstöðvarinnar að þurfa að færa 3.
hlið við stækkun flugstöðvarinnar. Færa þarf eldsneytiskerfi og miklar breytingar á innviðum
stöðvarinnar raska starfseminni á byggingartíma. Dómnefnd hefur ákveðið að tillagan hljóti
þriðju verðlaun.
inngangs um landgöngubrú þarf því að ganga út í
vél á hlaði að þremur flugstæðum. Áætlað er að
stofnkostnaður 1. áfanga lækki um a.m.k. 200
m.kr. við þessar aðgerðir. Kostnaður við byggingu
flugstöðvar og flughlaða er því áætlaður u.þ.b.
2.300 m.kr. miðað við breytta tillögu 71154.
NIOURSTÖOUR
Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið, í samræmi
við tillögu Framkvæmdasýslu ríkisins, að gerður
verði hönnunarsamningur við höfunda tillögu
71154 (grá) um hönnun stækkunar Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar. Samningur verði gerður á grund-
velli breyttrar útfærslu sem tillöguhöfundar kynntu
á fundi þann 19. mars 1999.
Höfundar tillögu eru: Andersen & Sigurdsson l/S
(Þórhallur Sigurðss./Ene Cordt Andersen) Holm &
Grut A/S (Niels Evert). Samstarfsaðili á íslandi er
Manfreð Vilhjálmsson, Arkitektar ehf. (Steinar
Sigurðsson).
Þegar tekið er tillit til kostnaðar við nauðsynleg-
ar aðgerðir í núverandi byggingu, búnað, sérkerfi
og farangursflokkunarkerfi, er Ijóst að heildar-
framkvæmdakostnaður við fyrsta áfanga stækkun-
ar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar verður rúmir 2,5
milljarðar króna. ■ Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Framkvæmdarsýslunnar: http//www.fsr.is
S3S
Til liðs við
náttúruna
með vörur frá Sæplasti
....... Pósthólf 50, 620 Dalvík, Sími 460 5000, Fax 460 5001,
f/iJJJjlííJJlj'WlJ'J/ 'jíMÚÍÚíJ'J Netfang saeplast@saeplast.is, Heimasíöa www.saeplast.is