AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 21

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Síða 21
Skerjafjörðinn og því eru þetta smáöldur sem eru á ferð í Skerjafirðinum, miðað við það sem við sjáum annars staðar þar sem hafaldan skellur óbrotin að landi. Hvað varðar tærandi áhrif seltu og sjávar á flugvélar sem sumir hafa nefnt sem ókost ef flugvöllur er fluttur úr Vatnsmýrinni út í Skerjafjörð- inn, þá er það vissulega rétt að slíkt tærandi álag mun væntanlega eitthvað aukast. Að tæring hafi slík afgerandi áhrif á þær flugvélar sem menn eru að nota í dag að ekki sé forsvaranlegt að flytja völlinn, þau rök er ekki hægt að kaupa. Tæring áls var vandamál fyrir nokkrum áratugum. í dag er ál einn endingarbesti málmurinn á markaðinum. Með nýjum vinnsluaðferðum er ál gert þannig að það þolir tærandi áhrif sjárvarseltu margfalt betur en áður var. Sú saga gengur m.a. að Vestmanneying- ar og Grímseyingar hafi á undanförnum árum verið þeir sem hafi keypt hlutfallslega mest af ál- klæðningum á veggi og þök vegna góðrar reynslu þar umfram aðrar málmklæðningar. Þær flugvélar sem nú eru notaðar þola sjávarseltu miklu betur en gömlu vélarnar gerðu. Sjóflugvélar eru í dag í notkun um allan heim og á svæðum þar sem sjór er saltari, hiti hærri og tæringarálag miklu meira en hér. Þá má minna á að einkaflugvélar standa inni þegar þær eru ekki í notkun þannig að ekki verða þær fyrir neinu áreiti frá seltu nema þegar þær eru teknar út úr flugskýlunum og það er helst gert í góðu veðri þegar ekkert er sjárvarrokið. Hvað varðar áætlunarvélarnar þá má segja frá því að Danir eru það náttúruvænir að þeir nota hland úr svínum til að afísa flugvélar og hefur verið gert í mörg ár. Til að eyða hálku á flugbrautum eru einn- ig notuð ýmis efni og flest þeirra eru ætandi og tærandi fyrir alla málma. Það eru allt aðrir þættir en málmtæring vegna sjávarseltu eða annarra efna sem ákvarða endingu flugvéla í dag, þó ein- hvern tíma um miðbik aldarinnar hafi þetta verið vandamál. SNJÓLÉTTUR FLUCVOLLUR Einn af stóru póstunum í rekstri flugvalla hér á landi er snjómokstur. Með staðsetningu flugvallar úti í Skerjafirði yrði Reykjavíkurflugvöllur einn snjóléttasti flugvöllur landsins og kostnaður við snjómokstur yrði í lágmarki. ísing á vellinum yrði væntanlega svipuð og nú er, NS brautin í dag ligg- ur nánast út í sjó og aðstæður þar svipaðar og mun verða á flugvelli úti í firði. Vel má vera að við einhver ákveðin veðurskilyrði myndist ísing á brautinni, sem ekki hefði gerst á velli í Vatns- mýrinni. Meginreglan er þó sú að ísingarhætta minnkar eftir því sem nær dregur sjó, því sjórinn er 5 til 8 gráðu heitur hér við land og flugbraut sem liggur umlukin sjó ætti í flestum tilfellum að verja sig betur ísingu en flugbrautir á landi. Það er almenn regla við rekstur flugvalla að bremsuskil- yrði eru metin daglega og ef ísing er á brautum þá eru þær afísaðar. FLUGVELAR WT í SJÓ í þeim drögum sem við höfum látið vinna er gert ráð fyrir að flugbrautir verði 150 m á breidd, braut er 50 m og öryggissvæði beggja vegna 50 m og er hliðarhalli á flugbraut og öryggissvæðum frá miðlínu vallar út að brún öryggissvæða þannig að vatn renni auðveldlega af braut og öryggissvæð- um. Samkvæmt reglum eiga öryggissvæðið að vera hindrunarfrí 50 m frá braut. Þar sem axlir öryggissvæða eru komnar neðar en brautin vegna hliðarhallans gerum við ráð fyrir að geta hlaðið grjótgarðinn 1 til 1,5 m hærra en öryggissvæði verður. Þannig verði öryggissvæðið rammað inn með grjótgarðinum og þær flugvélar sem renna út af flugbraut og yfir öryggissvæðin, lenda á þessum grjótgarði og stöðvast þar. NAUTHÓLSVÍK VATNAPARADÍS Ef gerður yrði flugvöllur í Skerjafirði í anda þeirra tillagna sem við höfum lagt fram þá mun hluti skerjanna við Löngusker og Hólma fara undir malar- og grjótfyllingar. Þetta eru hins vegar ekki einu skerin á Skerjafirðinum og jákvæð áhrif flug- vallarins yrðu einnig mikil á sjólag fyrir innan völlinn, þ.e. í Fossvoginum og Nauthólsvíkinni. Það sem helst hefur staðið Fossvoginum fyrir þrif- um og hann ekki orðið sú vatnaparadís sem marga dreymir um er undiraldan sem þarna er. Með tilkomu flugvallarins myndi undiraldan í Foss- voginum hverfa og aðstæðurtil siglinga, sjóskíða- iðkunar og slíkrar sportmennsku yrðu jafnvel betri í Nauthólsvíkinni en á Pollinum á Akureyri. í skjóli þessa 700 til 800 metra langa vegar út að flugvell- inum opnast einnig möguleikar á lystibátahöfn. Þá er rétt að nefna að innsiglingarrennan sem liggur alveg við land á Álftanesi verður í engu skert og völlurinn mun ekki hafa nein áhrif á siglingar skipa til hafnar í Kópavogi. 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.