AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 43
eða annars húsnæðis.
Þeir veita ráðgjöf við
kaup á húsnæði og
leggja mat á þörf fyrir
endurnýjun og breyt-
ingar. Þeir hafa einnig
umsjón og eftirlit með
framkvæmdum, gera
brunahönnunaruppdr-
ætti, skráningatöflur og
eignaskiptayfirlýsingar.
í nýjum byggingarlög-
um og byggingareglu-
gerð nr. 135/1998 er
ábyrgð arkitekta aukin
mjög og verksvið þeirra
FELAG sjálfstætt starfandí
ARKITEKTA
að hefur lengi verið Ijóst að sjálfstætt
starfandi arkitektar vinna sín störf við
aðstæður sem gera það að verkum að
hagsmunir þeirra fara ekki alltaf saman
með almennum hagsmunum arkitekta-
stéttarinnar, sem Arkitektafélag íslands
sinnir.
Sjálfstætt starfandi arkitektar hafa því stofnað
félag til að vinna að hagsmunamálum sínum og er
nafn þess Félag sjálfstætt starfandi arkitekta,
FSSA. Stofnendur félagsins telja það mikilvægt að
félagið verði ekki til að rjúfa faglega og félagslega
samstöðu arkitekta á neinn hátt og eru félagar í
því jafnframt félagsmenn í Arkitektafélagi íslands.
Formaður hins nýja félags er Albína Thordarson,
ritari og varaformaður er Gestur Ólafsson, Ævar
Flarðarson, gjaldkeri, og meðstjórnendur eru þeir
Gylfi Guðjónsson og Richard Ó. Briem.
Félagsmenn í FSSA starfa sjálfstætt að hönnun
og ráðgjöf á sviði skipulags- og byggingarmála, en
ekki hjá fyrirtækjum, samtökum eða stofnunum og
þeir mega ekki hafa neinna hagsmuna að gæta af
starfsemi sem getur haft áhrif á starf þeirra sem
ráðgjafa.
Aðalstarfssvið arkitekta er hönnun nýbygginga,
breytingar á eldra húsnæði, skipulag bæja og
deiliskipulag. Þeir veita fyrirtækjum, stofnunum og
einstaklingum ráðgjöf um húsnæðisþörf og hvaða
kosta er völ þegar velja skal á milli nýbygginga
víkkað. Þeir bera nú ábyrgð á allri samræmingu
við hönnun bygginga og þess vegna er þess
krafist að þeir undirriti teikningar annarra hönnuða,
svo sem burðarþolsteikningar, lagnateikningar og
loftræsiteikningar.
Arkitektar bera nú meiri fjárhagslega ábyrgð á
hönnun sinni en áður og þeim er gert skylt að
kaupa sér tryggingu þess vegna. Tryggingin gildir
í fimm ár eftir lokaúttekt byggingarframkvæmda
sem nú eru samþykktar í byggingarnefndum
landsins.
Með þátttöku íslands í Evrópska efnahags-
svæðinu hefur starfsumhverfi íslenskra arkitekta
breyst í grundvallaratriðum. Erlendir arkitektar og
ráðgjafar geta nú starfað óhindrað á íslandi og
íslenskum arkitektum skapast ný tækifæri er-
lendis.
Félag sjálfstætt starfandi arkitekta verður starfs-
vettvangur fyrir arkitekta, sem vilja takast sam-
eiginlega á við samkeppni við útlendinga hér á
landi og verkefni á alþjóðlegum markaði, sem oft
er einyrkjum eða litlum arkitektastofum ofviða.
Nauðsynlegt er fyrir íslenska arkitekta að líta á
þetta nýja fyrirkomulag sem tækifæri til að efla
arkitektástéttina og störf hennar og einnig er
nauðsynlegt að arkitektar kynni sér þessi nýju lög
og reglugerðir vel og átti sig á því hvaða áhrif þau
hafa á ábyrgð þeirra og skyldur. ■
41
ALBÍNA THORDARSON, FORM. FSSA