AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 61
HANDVERKFÆRI 2. ár -1. misseri
Verkefnið var að hanna rafknúin skæri eða klippur og
var unnið í þriggja manna hópum Við völdum að hanna
rafknúin heimilisskæri fyrirfólk með liðagigt. Unnið var
bæði með tæknilega uppbyggingu og ytra form.
Við höfðum samvinnu við notendur allan tímann, sem
prófuðu líkön og gáfu okkur góðar ábendingar.
Hópvinna: (Guðmunda, Mats og Kristian)
ÚTIGRILL 1. ár - 2. misseri
„Verkefnið var mjög frjálst og ofboðslega skemmti-
legt. Lögð áhersla á hugmyndavinnu og vinnu í verk-
stæði.
Grunnhugmyndin var íslenskt eldfjall og ég er
ánægð með útfærsluna."
Hönnun og mynd: Guðmunda Geirmundsdóttir.
TÆKNILEG HÖNNUN
VERKFRÆÐILiST
austið 1993 var komið á fót náms-
braut í Tæknilegri Iðnhönnun við
________ Norska Verkfræðiháskólann í
Þrándheimi (NTNU). Nám þetta var
hið fyrsta sinnar tegundar á Norð-
urlöndum en fleiri háskólar hafa fylgt
eftir á þessari braut. Hér á eftir verður fjallað um
aðdragandann að stofnun deildarinnar og sagt frá
starfinu þar.
Frá byrjun hefur námið verið eftirsótt, en fjöldi
plássa er takmarkaður. Nemendur eru teknir inn
eftir sömu reglu og í aðrar verkfræðigreinar við
NTNU. Hér vegur einkunn úr grunnnámi þyngst.
Aukastig eru gefin fyrir starfsreynslu og annað
nám á háskólastigi en alltaf er krafist góðrar
undirstöðu í raungreinum. Námið hefur frá byrjun
verið vinsælasta tækninám í Noregi og hafa
inntökukröfurnar verið svipaðar og í læknisfræði
og blaðamennsku.
AÐDRAGANDI
Hugmyndin um iðnhönnunarnám í Noregi kom
fyrst fram skömmu fyrir 1960, en ekki varð úr
framkvæmd þá. Nám í iðnhönnun hófst svo við
Listiðnskólann í Osló um 1980. Tíu árum seinna
tóku svo Norsku vinnuveitendasamtökin frum-
kvæði að því að athuga möguleika á iðnhönnun-
arnámi í Þrándheimi. Undirbúningsvinna var svo
sett í gang og í janúar ‘93 fékkst leyfi frá ráðuneyti
til að taka inn nemendur þá um haustið. Jóhannes
B. Sigurjónsson, sem þá hafði nýlega lokið fram-
haldsnámi í hönnunarfræðum við vélaverkfræði-
deildina í Þrándheimi, var ráðinn verkefnisstjóri til
að vinna að undirbúningi ásamt verkefnisstjórn
sem skipuð var fulltrúum arkitekta og vélaverk-
fræðideildanna.
Miklu máli skipti að stórfyrirtækið Hydro Alumin-
ium ákvað að styðja Tækniháskólann í þessu máli
og veitti fé til prófessorsstöðu í iðnhönnun í 5 ár.
59
JOHANNES B. SIGURJONSSON, PROFESSOR