AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Blaðsíða 16
Grófin, deiliskipulag.
ingu liggja fyrir en meö megináherslu á miöborgina.
Þessi vinna er í beinu framhaldi af gerö þróunaráætlun-
arinnar sem er hluti forsagna viö gerö deiliskipulags.
Þetta átaksverkefni er viöbót viö þá vinnu sem sífellt er
í gangi viö endurskoðun skipulags og viö skipulag nýrra
hverfa.
Grunnvinna aö skipulagsgerö svo sem forsögn og
rammaskilmálar hefur veriö unnin á Borgarskipulagi
(skipulagsdeild á skipulags- og byggingarsviöi í dag) en
skipulagsvinnan sjálf er unnin af sjálfstætt starfandi
ráögjöfum. í byrjun árs 2002 eru um 20 ráðgjafarstofur
aö vinna aö skipulagsgerð á vegum borgarinnar og af
þeim fjölda er um helmingur verkefni á miðborgar-
svæöinu.
í upphafi átaksins fór fram forval meöal ráögjafarstofa
og inn á milli hefur verið skotiö samkeppni, eins og um
framtíðarskipulag í Grafarholti þar sem byggö er nú aö
rísa, einnig um byggö í Höllum, Hamrahlíðarlöndum og
Úlfarsárdal og hugmyndasamkeppni hér í hjarta miö-
borgarinnar um tónlistarhús, ráöstefnumiöstöö og hótel
(TRH) sem nýlega er lokið.
Um tvö síöast nefndu dæmin er fjallað sérstaklega
hér annars staöar í heftinu. í undirbúningi er útboö á
samkeppni um vesturhluta gömlu hafnarinnar og nán-
asta umhverfi í framhaldi TRH samkeppninnar. Einnig
er stefnt aö hugmyndasamkeppni um byggö í Vatns-
mýri. í samvinnu viö Háskóla íslands er stefnt aö sam-
keppni um skipulag háskólalóðarinnar í heild á árinu
2003.
Áhersla hefur veriö lögö á endurskoðun skipulagsreita
sem liggja meö Laugavegi og nýta til þess þróunar-
áætlunina og styðja þar meö viö uppbyggingu og endur-
gerö húsa viö aðalverslunargötu höfuöborgarinnar.
Náiö hefur veriö fariö í skoðun á varöveislugildi húsa,
götumynda og heilla reita og stuöst þar að verulegu
leyti viö þemahefti aöalskipulagsins 1996-2016.
Húsvernd í Reykjavík og varöveisluáætlun þróunar-
áætlunarinnar.
Verslunargata eins og Laugavegur þarf að vera í
sífelldri endurskoöun vegna breytinga í verslunarrekstri
og verslunarháttum en um leið þarf aö halda í sérstööu
götumyndarinnar - andrými Laugavegarins. Eöa eins
og segir í hefti þróunaráætlunarinnar um verndun og
uppbyggingu:
„Eitt helsta viöfangsefni deiliskipulags í miðbænum
verður aö vinna á skapandi hátt meö þessar andstæður
í bæjarmyndinni, draga úr þeim eöa skerpa eftir
atvikum, þannig að sjónarmið verndunar og uppbygg-
ingar geti sem best farið saman. Meö því móti er best
hægt aö tryggja aö miðborg Reykjavíkur haldi sérkenn-
um sínum og svipmóti. Þetta á ekki aðeins viö um ein-
stök hús heldur einnig yfirbragð húsaraöa, gatna og
hverfishluta."
Áhersla er lögö á aö finna svæöi þar sem hægt er aö
sameina lóðir eöa byggja inn í reiti til aö skapa rými fyrir
nútíma þjónustustarfsemi.
Samkvæmt fyrirliggjandi skipulagstillögum er gert ráö
fyrir aö hægt sé aö koma fyrir um 50.000 m2 af verslun-
ar- og þjónusturými í nýbyggingum viö Laugaveg
(Kringlan er í dag um 52.000m2).
Þaö er ýmislegt í borgarmyndinni sem gerir Reykjavík
aö sérstæöri borg og okkur ber aö halda í. Borgin er
ekki samfelld randbyggö meö götum eins og ýmsar
eldri borgir en hefur sín sérkenni, fegurö og marg-
breytileika sem viö viljum eiga áfram en um leiö viljum
viö vera framsækin og djörf þar sem færi gefst.
Náiö samstarf er viö embætti borgarverkfræðings
(umhverfis- og tæknisviö) viö undirbúning skipulags-
vinnu og viö hafnarstjóra um reiti í og viö hafnarsvæðin.
Áhersla hefur veriö lögö á kynningar til íbúa og hags-
munaaðila og samstarf viö borgarbúa eins og kostur er.
Áöur en formleg skipulagsvinna hefst á reit er öllum
íbúum og hagsmunaaöilum send tilkynning um aö end-
urskoðun standi fyrir dyrum og óskað eftir ábendingum.
Þegar fyrir liggur frumtillaga er hún oft kynnt hags-
munaaðilum og enn er tillaga kynnt þegar hún hefur
fengiö samþykki í meginatriöum.
Aö lokum er skipulagstillagan auglýst í lögformlegri
kynningu og óskaö eftir skriflegum ábendingum og at-
hugasemdum áöur en borgaryfirvöld samþykkja endan-
legt deiliskipulag.
Viö þessa miklu skipulagsvinnu hefur reynt á skipu-
lagslögin og reglugerð frá 1998 og er reynslan aö hiö
eiginlega vald á deiliskipulagsgerö sem stefnt var aö