AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Blaðsíða 77
THE PLANNING FUND OF REYKJAVIK
Skipulagssjóður Reykjavíkurborgar
Skipulagssjóður Reykjavíkurborgar var stofn-
aður þann 21. ágúst 2001 með það að
markmiði að stuðla að því að skipulags-
áform borgaryfirvalda nái fram að ganga
með því að vinna að framgangi afmarkaðra
skipulagsverkefna innan borgarmarkanna.
Tilgangur sjóðsins er að annast tengsl og samræmingu
milli Reykjavíkurborgar og stofnana hennar annars
vegar og framkvæmdaaðila og/eða landeigenda, lóðar-
hafa og eigenda fasteigna hinsvegar um það sem lýtur
að framkvæmd skipulagsmála.
Með hliðsjón af markmiði og tilgangi sjóðsins eru
helstu verkefni hans:
■Að annast kaup og sölu fasteigna og lóða.
■Að annast vörslu og ráðstöfun þeirra eigna sem
sjóðurinn kaupir.
■Að annast þjónustu við framkvæmdaaðila varðandi
útfærslu skipulags á lóðum/löndum innan Reykjavíkur
og tryggja þeim nauðsynlegan aðgang að upplýsingum
og starfsmönnum sem þörf er á við úrlausn einstakra
verkefna sjóðsins.
Skipulagssjóður Reykjavíkurborgar heyrir undir borg-
arráð og er vistaður á Umhverfis- og tæknisviði. Borg-
arverkfræðingur er stjórnarformaður sjóðsins en auk
hans sitja í stjórn: skipulagsstjóri, borgarritari, borgar-
lögmaður og fjármálastjóri borgarinnar. Sjóðurinn hefur
sérstakan framkvæmdastjóra sem sér um daglegan
rekstur hans.
Meðal þeirra verkefna sem hæst ber hjá sjóðnum í
dag má nefna: Uppkaup á landspildum í Norðlingaholti
í tengslum við fyrirhugaða byggð þar, útboð á gömlu
Ölgerðarhúsunum við Njálsgötu, Grettisgötu og Frakka-
stíg og uppbygging í Skuggahverfi í samstarfi við 101
Skuggahverfi. ■
THE PLANNING FUND OF REYKJAVIK
The Planning Fund of Reykjavík was established on the
21 st of August 2001, with the objective of contributing
to the realisation of City of Reykjavík’s planning policies
by contributing to the completion of certain planning
projects within city limits. The purpose of the fund is to
secure cooperation and coordination between the City
of Reykjavík and its institutions on the one hand, and
developers and/or owners of land and properties and
leaseholders on the other in matters concerning the
carrying out of planning proposals.
The Fund’s main tasks are:
■ To buy and sell buildings and sites.
■ To manage and dispose of properties bought by the
fund.
■ To assist developers in carrying out the planning of
sites/land in Reykjavík and secure acess to necessary
information and expertise needed to carry out projects
undertaken by the fund.
The Excecutive Committee of the City Council is in
charge of the Planning Fund, which is kept at the
Department for Environment and Technology. The City
Engineer is Chairman of the Excecutive Committee for
the Fund, but other members of the committee are the
Planning Officer, General Secretary, City Advocate and
City Treasury Manager. An excecutive officer is in
charge of the daily operation of the Fund.
Among the tasks being undertaken by the Fund are:
the purchase of land in Norðlingaholt, in connection
with proposed development there; the sale of the old
brewery by Njálsgata, Grettisgata and Frakkastígur and
redevelopment of „Skuggahverfi” in cooperation with
101 Skuggahverfi. ■ Porsteinn I. Garðarsson, Managing
Director of The Planning Fund of Reykjavík.
75
ÞORSTEINN I. GARÐARSSON, FRAMKVSTJ. SKIPULAGSSJÓÐS REYKJAVÍKURBORGAR