AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Blaðsíða 61
Megininnkaup af gjafavöru fyrir jólin 2001 eftir svæöunv.
(önnun Gallup 2002
Mynd 3. Main purchases of Christmas gifts 2001 by district. Gallup Poll,
2002.
veltu smásöluverslunar eftir hverfum á
höfuöborgarsvæöinu (Verslun á höfuö-
borgarsvæöinu, 2001). Eins hefur
Þróunarsviö staöiö aö viðamiklum kön-
nunum á þjónustu borgarinnar og ýmsum
sértækari könnunum t.d. á lífsskoðunum
borgarbúa og jólaverslun landsmanna
2001 svo dæmi séu tekin (sjá mynd 3). í
vinnslu er úttekt á flutningum innan sem
og til og frá höfuðborgarsvæðinu síöasta
áratuginn 1991 - 2001. Á árinu verður farið
út í viöamikla könnun á húsnæöis- og bú-
setuóskum ólíkra félagshópa meö „visual
preference” aöferöinni.
Samráð og samstarf við borg-
arbúa:
Á síöustu misserum hafa borgaryfirvöld
lagt mikla áherslu á að auka og bæta sam-
ráð og samstarf viö íbúa borgarinnar og
þátttöku þeirra í ákvöröunum. Hér aö
neðan eru þau helstu talin upp;
Framtíðarborgin. Þetta er viöamikiö samráðsverkefni
milli borgaryfirvalda og almennings sem unnið var á
árinu 2000 undir stjórn Þróunarsviðs. (Sjá grein um
þetta efni í blaðinu).
Atkvæðagreiðsla um framtíð Vatnsmýrar sem fram
fór 17. mars 2001.
Samráösskipulag. Á árinu 2002 hafa þegar veriö
haldnir tveir samráðsfundir meö almenningi um skipu-
!ags- og umhverfismál. Þá er áformað íbúaþing í byrjun
maí í Vesturbænum.
Forvarnir og nýbúamál: Þróunarsvið hefur tekiö virk-
an þátt í verkefnum sem lúta aö stefnumótun í fíkni-
efnavörnum og stefnumótun fyrir fjölmenningarlegt
samfélag í borginni þmt. undirbúningi aö stofnun al-
þjóöahúss.
Hverfabundin þjónusta. í október 2001 samþykkti
borgarráö tillögu um skiptingu borgarinnar í 4 borgar-
hluta og 8 hverfi (sjá mynd 4). Þaö verður eitt af meg-
inverkefnum borgarstarfsmanna næstu misseri aö móta
hvernig hverfaþjónustu veröur komiö á í borginni.
Miðlun upplýsinga
Samráö viö borgarbúa er nátengt miölun upplýsinga
til þeirra. Þróunarsviö í ráöhúsi gegnir mikilvægu hlut-
verki viö upplýsingamiðlun. Dæmi um nýleg verkefni
eru: Borgin í bítiö. Síðastliðið haust hleypti Þróunarsviö
í ráðhúsi í samvinnu viö Borgarfræöasetur af stokkun-
um fundarröö um borgarmálefni í formi morgunveröa-
funda sem haldnir hafa verið mánaöarlega í vetur á
Grand hóteli. Þróunarsvið sér um útgáfu Árbókar
Reykjavíkur og hefur samvinnu viö tölfræðistofnanir
höfuöborga Noröurlanda um samræmdan gagnagrunn
16 stærstu borgarsvæöa á Norðurlöndum (Nordstat
verkefniö).
Stefnumétun
Sem dæmi um stefnumótun sem samþykkt hefur ver-
iö af borgaryfirvöldum og mikilvægt er aö hafa hliðsjón
af viö mótun rannsóknaverkefna má nefna:
■ Upplýsingastefna Reykjavíkurborgar hefur þaö að
leiöarljósi aö Reykjavíkurborg veiti áreiðanlegar og að-
gengilegar upplýsingar um starfsemi sína og starfs-
hætti.
■ Fjölmenningarlegt samfélag. Stefnumótunin hefur
aö leiöarljósi aö reykvískt samfélag fái notiö fjölbreytni í
mannlífi og menningu þar sem þekking, víösýni, jafn-
rétti og gagnkvæm virðing einkennir samskipti fólks af
ólíkum uppruna.
■ Umhverfisstefna. Stefnt er aö því markmiði aö
Reykjavík veröi vistvænasta höfuöborg noröursins.
Hluti af umhverfisstefnu Reykjavíkur er Staöardagskrá
borgarinnar.
Eins er mikilvægt aö fylgja stefnumótun skipulags-
áætlana eftir meö rannsóknavinnu. Hlutverk Þróunar-
sviös í ráðhúsi í samvinnu viö skipulagsyfirvöld er aö
vinna aö því að stærri skipulagsáætlanir byggist á sem
traustustum félags-, efnahags- og þjónustulegum for-
sendum til þess aö þær veröi sem raunhæfastar.
59