AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Page 29

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Page 29
CITY CENTRE DISTRICT COUNCIL - ROLE AND POSITION Miðborgarstjórn - hlutverk og staða V A iðborgarstjórn var * ■v, ^ . > \ / sett á laggirnar í \ \ / upphafi árs 1999. \ / Það var gert að \ / tillögu breska ráð- V gjafarfyrirtækisins Bernard Engle Architects and Planners sem voru fengnir til þess að vinna að sérstakri þróunaráætlun um miðborgina. Hópur hagsmunaaðila í miðborginni og embættismanna borgarinnar vann tillög- ur að því hvernig miðborgarstjórn skyldi skipuð og varð niðurstaðan sú að borg- arstjóri yrði formaður og auk þess sætu í henni tveir fulltrúar Reykjavíkurborgar og þrír utan borgarkerfisins. Þegar miðborg- arstjórn var komið á fót var ákveðið að hún skyldi starfa í tvö ár. Borgarráð samþykkti í maí 2000 að framlengja starfstíma miðborgarstjórnar til loka kjörtímabilsins eða fram í júní 2002. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um á hvaða hátt haldið verður á málefnum miðborgarinnar eftir þann tíma, hvort t.d. miðborgarstjórn starfi áfram með sama hætti og undanfarin ár eða hvort breytingar verða gerðar á nýju kjörtímabili. Hlutverh Miðborg Reykjavíkur átti til skamms tíma undir högg að sækja og má m.a. rekja það til uppbyggingar verslunarkjarna sem lágu betur að íbúðahverfum en miðborgin. Margar verslanir í miðborginni gáfust upp og hnignunar varð vart á mögum sviðum. Eitt erfiðasta tímabilið var í lok níunda áratugar síðustu aldar um það leyti þegar Kringlan opnaði. Þótt það sé lítil huggun harmi gegn þá þjáðust miðborgir í löndum bæði austan hafs og vestan af sams konar tilvistarkreppu og miðborg Reykjavíkur gerði. Þróunaráætlun miðborgar og framkvæmdum í kjölfar hennar er m.a. ætlað að snúa þeirri þróun við. Miðborgarstjórn og framkvæmdastjóra miðborgar er ætlað að hafa frumkvæði að ýmsum málum til að efla miðborg Reykjavíkur og fylgja eftir þróunaráætlun mið- borgarinnar, samhæfa og bæta þjónustu borgarstofn- ana á svæðinu. Miðborgarstjórn stendur ekki fyrir fram- kvæmdum eða rekstri í miðborg Reykjavíkur heldur er hún farvegur fyrir nýjar hugmyndir, hvati á breytingar og aðgerðir í miðborginni. Hún er bakhjarl miðborgarinnar í borgarkerfinu. Helstu verkefni Miðborgarstjórn og framkvæmdastjóri miðborgar hafa unnið að málefnum miðborgar með margvíslegum hætti. Má þar nefna vinnu með borgarstofnunum að fjölgun bílastæða, undirbúningi að byggingu bílahúsa, undirbúningi að endurgerð og lagfæringu gatna, fegrun og hreinsun, flóðlýsingu húsa, jólalýsingu, endurgerð húsa og öðrum framkvæmdum. Reglulegt samstarf og samráð hefur verið haft við Þróunarfélag miðborgarinn- ar auk þess sem samráð hefur verið haft við aðra hópa sem starfa innan miðborgarinnar. Kynningarbæklingar um miðborgina komu út bæði á árinu 2000 og 2001. Á vegum miðborgarstjórnar var gerð greining á starfsemi í miðborginni þar sem m.a. kemur fram um hvers konar starfsemi þar er að ræða, fjöldi starfsmanna, fjöldi fyrir- tækja, stærð fyrirtækja, fjöldi íbúa og fleira sem að gagni getur komið við að meta vöxt og viðgang mið- borgarinnar. Jafnframt er kannað reglulega hve oft fólk kemur í miðborgina og í hvaða tilgangi. Allar borgarstofnanir koma með einum eða öðrum hætti að verkefnum í miðborginni. í verkefnalista sem fylgir starfsáætlun miðborgarstjórnar eru listuð upp á fimmta tug verkefna sem lúta af miðborginni og eru 27 KRISTTÍN EINARSDÓTTIR, FRAMKVSTJ. MIÐBORGAR

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.