AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 30

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 30
unnin af fjölmörgum aöilum. Þar er fjallað um umhverf- ismál, verslun og þjónustu, uppbyggingu og endurbygg- ingu, skipulag og umferöarmál. Tekið er fram hver ber ábygð á hverju verkefni og hvenær þau eigi að fram- kvæma. Verkefnalistinn sýnir þá heildarsýn sem mið- borgarstjórn hefur og það hlutverk hennar að vera í senn frumkvöðull og eftirlitsaðili í málefnum miðborgar- innar þvert á allt borgarkerfið. Á undanförnum árum hafa orðið verulegar breytingar í miðborginni til hins betra. Götur hafa verið endurgerð- ar, hús fegruð, umhverfi Tjarnarinnar hreinsað og fegr- að og sérstök áhersla er á að hreinsa og snyrta mið- borgina og eru götur víðast hreinsaðar daglega stærst- an hluta ársins. Menningarstofnanir hafaflutt í miðborg- ina og sést á fjölda þeirra sem sækja Borgarbókasafnið í Grófarhúsinu að fólk kann að meta það sem þar er að sækja. Fjölmargar hátíðir og listviðburðir eru í miðborg- inni og ferðamenn sem koma til Reykjavíkur koma nær undantekningarlaust í miðborgina og sóst er eftir að fá að búa í og við miðborgina. Sú neikvæða umfjöllun sem einkenndi umræðuna um miðborgina hefur breyst til hins betra. Viðbrögð annars staðar Eins og áður sagði hafa miðborgir átt undir högg að sækja með breytingum á hlutverki þeirra. Á Bretlandi hefur verið tekið á vanda miðborga með ýmsum hætti. Víðast hefur verið komið upp miðborgarstjórnum sem samstarfsvettvangi borgaryfirvalda og hagsmunaaðila. í flestum tilvikum koma hagsmunaaðilar af miklum krafti að þessum stjórnum og leggja verulegt fé til starfsem- innar. Ríkisstjórn Bretlands hefur einnig markað stefnu í málefnum miðborga. í stefnu hennar í skipulagsmálum (National Planning Policy Guideline) kemur áhersla á mikilvægi miðborga fram í sérstökum kafla (NPPG 8 revised 1998). Þar er lögð áhersla á að við alla skipu- lagningu séu hagsmunir miðborga sérstaklega hafðir í huga. Er þar bæði átt við miðbæi (centre) borga og hér- aða (district centre). Til að styðja þessa stefnu ríkis- stjórnarinnar skulu skipulagsyfirvöld innleiða forgangs- röðun sem setur miðborgir í öndvegi. Ef sýnt hefur verið fram á að byggja þurfi upp viðbótarverslun á svæðinu þarf fyrst að finna leið til að sú uppbygging geti verið á miðborgarsvæði. Ef því verður ekki við komið er leitað að svæði á jöðrum miðborgar og aðeins ef það tekst ekki er fyrst hægt að leyfa uppbyggingu utan miðborg- arsvæðis. Jafnvel þótt uppbyggingaraðili (developers) geti, eftir þennan feril, sýnt fram á þörf á uppbyggingu utan miðborgar verður hann að sýna fram á að upp- 28

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.