AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 36

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 36
vitað til þess að henni hafi verið beitt áður í verkefni sem þessu. Áður en of- angreindur hópur hóf störf hafði verið unnið að þarfagreiningu meðal fræði- manna, skólafólks og fulltrúum úr fer- ðaþjónustu. Samkvæmt greinargerð sem stýri- hópur skilaði borgarráði í upphafi árs er gert ráð fyrir að fornleifauppgröftur í Víkurgarði hefjist í haust og uppsteypa sýningarrýmis handan götunnar nokkru síðar. Það ræðst af niðurstöð- um fornleifarannsókna hvenær hægt verður að hefja framkvæmdir við inn- ganginn en hönnun hans og garðsins mun taka mið af þeim niðurstöðum. í greinargerðinni er gert ráð fyrir að innrétting sýningarrýmis fari fram á árunum 2003-2004 en stefnt er að því að sýningin verði opnuð á vordögum 2004 á sama tíma og hótelið á efri hæðum. Sýningarskálinn eða „Landnáms- skálinn” eins og hann er stundum nefn- dur ásamt væntanlegu hóteli verður án efa mikil lyftistöng fyrir Kvosina enda væntanlega upphafið að stærra verk- efni sem miðar að því að auka þekk- ingu á menningararfi borgarinnar. verkið í gömlu og grónu umhverfi sem þessu. Niður- staðan var sú sem sjá má á meðfylgjandi teikningu, þ.e. inngangur í sýningarskálann verður um Víkurgarð og undir Aðalstræti sem verður hækkað nokkuð á þessum kafla götunnar. Þetta mun hins vegar styrkja svæðið og sýninguna því með þessu tengjast tvö merk svæði í sögu borgarinnar, þ.e. upphaf landnáms og upphaf kirkjuhalds. Við frekari útfærslu á hugmyndinni verður lögð áhersla á að vekja athygli á forminjunum, t.d. í götumyndinni og garðinum en þar þarf að fara fram fornleifauppgröftur áður en framkvæmdir hefjast. Vegna þess hve verkefnið er sérstakt var ákveðið að fara óhefðbundnar leiðir við gerð frumhugmyndar að sýningu. í stað þess að efna til samkeppni var leitað til nokkurra einstaklinga með mismunandi bakgrunn, þ.e. arkitekta, leikmyndahönnuða, myndlistarmanns og leikara. Hópurinn hittist á nokkrum hugarflæðisfundum og hefur nú skilað niðurstöðum til stýrihóps um verkefnið. Hugmyndir sem þar eru settar fram eru mjög áhugaverðar og er óhætt að fullyrða að þessi aðferð er væntanlegri sýningu mjög til framdráttar, en ekki er BLESSUÐ REYKJAVÍK Með fornleifar af frumgerð borgarinnar Sunnan báran boð þér flutti, blessuð Reykjavík. Land þitt fannst - og forsjón dagsins. Fann þig auðnan rík. Yfirgaf norsk hetja hafsins heimsins iðu-torg. Bær varð Ingólfs Arnarsonar íslands höfuðborg. Frúin Hallveig Fróðadóttir farsæl móðir var. Fyrstu landnáms heiðrum hjónin. Helgum minningar. Víkur búa verkin hafin vel þau skila sér. Nýrri þús-öld grundvöll gefur Guð vor,- hann sem er. Hr. Pétur Sigurgeirsson, biskup3 34

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.