AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 39

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 39
HARBOUR AREAS AND CENTRAL CITIES. A competition for a music hall, conference centre and a hotel. Gamla höfnin og miðbær Reykjavíkur. Margar borgir eiga þaö sammerkt aö eiga vöxt sinn og viðgang aö þakka góöri legu aö siglingaleiöum og góöum hafnarskilyrðum. Fjöldi borga beinlínis óx út frá lífæð sinni, hafinu. Hefðbundin hafnarstarfsemi hefur hins vegar verið á undanhaldi í borgarmiðjum, eftir því sem allir samfélags- og atvinnuhættir, flutningastarf- semi og sjávarútvegur hafa breyst. Hafnarsvæöin hafa hins vegar víöa um lönd verið að sækja í sig veðrið á ný. Auk þess að liggja nærri miðju borganna hafa þau margt til að bera sem dregur að fólk og gerir þau áhuga- og eftirsóknarverð þegar litið er á möguleika til þróunar borga og þéttbýlis. Hafnarsvæði voru möndull viðskipta og atvinnulífs, og þar mættust oft skarpar menningar- og félagslegar andstæður: auðlegð og fátækt, framsækni og hnignun. Sjálfsagt veldur þetta allt - staðsetning, saga, sjarmi - mestu um að áhersla hefur verið lögð á endurnýjun hafnarhverfanna og færst hefur í vöxt að starfsemi sem tengist menningu, listum og afþreyingu er fundinn staður í nálægð við sjóinn. Víða eru hafnarsvæði á ný miðja iðandi mannlífs. Margir hafa orðið til að benda á að í Reykjavík hafi nokkuð skort á tengingu hafnarinnar við miðbæinn. Sér 37 Sólveig B. Björnsdóttir, ARKITEKT

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.