AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 41

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Side 41
Naestu skref - deiliskipulag* einkafram- kvxmd Ákveðið hefur verið að sá hluti verkefnisins sem snýr að byggingu tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar, hótels og tengdum mannvirkjum verði boðinn út í heild, þ.m.t. endanleg hönnun mannvirkja og lóðar. Telja má eðlilegt að unnið verði að deiliskipulagi þar sem verðlaunatillag- an verði notuð sem útgangspunktur. Virða þarf heildar- yfirbragð tillögunnar og megineinkenni, t.d. að tónleika- salurinn verði „hápunktur", útitorg verði miðlægt og að hið svokallaða „markaðstorg" undir útitorginu verði aðalinngangur TRH. Af hálfu borgaryfirvalda hefur verið lýst stuðningi við að vinningstillagan verði slíkur útgangspunktur. Það er hins vegar nauðsynlegt að þeim, sem ætlað er að festa fé í uppbyggingu svæðisins, verði gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif á endanlega útfærslu hennar. Margar þeirra hugmynda sem fram komu í vinnings- tilögunni eru þess eðlis að þær þarf að þróa áfram og skerpa í drögum að deiliskipulagi. Þætti eins og göngu- tengsl við borgarmiðjuna - Geirsgötu, Tryggvagötu, Hafnarstræti, Lækjartorg og Pósthússtræti - þarf að útfæra nánar, einnig allt fyrirkomulag á strætis- vagnamiðstöð. Skilgreina þarf aksturleiðir að svæðinu og mannvirki, sem leiða umferð í gegnum það, og setja fram ákveðnari hugmyndir að ýmsum þáttum, t.d. bíla- stæðum. Nokkur gagnrýni hefur komið fram á hið hallandi torg í suður frá TRH, en því er ætlað að mynda einskonar undirgöng sem tengja TRH við svæðið handan Geirs- götu. Þessi gagnrýni á rétt á sér. Mörg dæmi eru um mislukkuð undirgöng af þessu tagi. Hægt er að hugsa sér þessa hugmynd útfærða með sterkari og ákveðnari tengingu við Lækjartorg, Laugaveg og Austurstræti, þannig að til verði samfelld þjónustu- og verslunarheild frá Hlemmi. í stað „undirganga" kæmi til álita að skapa hér einskonar vist- og verslunargötu, jafnvel á tveimur hæðum. Göngutengsl við Sæbraut og strandgöngustig eru einnig mikilvæg. Nyrsti hluti lóðarinnar er ætlaður fyrir hafnarstarfsemi og er húsnæði fyrir hana samtengt TRH. Gera þarf ná- kvæma þarfagreiningu og forsögn fyrir frekari skipu- lagsútfærslur, þannig að öllum þörfum sé fullnægt og góð tenging verði milli hafnarinnar og Sæbrautar. Þess er að vænta að mögulegir fjárfestar, eða einka- framkvæmdaraðilar, komi að mótun hugmynda um uppbyggingu svæðisins þegar tekin hefur verið afstaða til framangreindra þátta og annarra þátta sem borgar- yfirvöld hljóta að líta á sem forskrift þess sem á eftir kemur. Þótt ástæðulaust sé að rígbinda eða njörva allt niður áður en fjárfestar koma að málinu er Ijóst að upp- bygging þessa mikilvæga hluta miðborgarinnar verður að þjóna almennum borgarhagsmunum. Níðurlag Það er mikilvægt verkefni að standa þannig að þróun og skipulagi við Austurhöfnina að besta niðurstaða fáist. Svæðið er í hjarta miðborgarinnar, höfuðborgar- innar. Vilji borgar og ríkis stendur til þess að leggja í verulegar fjárfestingar á svæðinu. Skapa þarf skilyrði til að einkaaðilar telji fýsilegt að leggja þar í fjárfestingar og rekstur sem er til þess fallinn að styrkja atvinnu- og menningarlíf miðborgarinnar. Þær ákvarðanir sem nú verða teknar eru afdrifaríkar; ef vel tekst til styrkist og eflist mannlíf í miðborginni, ef ekki er næsta víst að erfitt getur reynst að tryggja að miðborg höfuðborgar- innar haldi sínu eða eflist í samkeppninni um fé og fólk. Sú samkeppni tekur á sig æ alþjóðlegri blæ. Með því, hvernig staðið hefur verið að undirbúningi skipulagsákvarðana, hafa borg og ríki sýnt framsýni og allt hefur verið gert til að kalla fram bestu hugsanlegu tillögur og vanda til mats á þeim. Nú hefst nýr áfangi. ■ HARBOUR AREAS AND CENTRAL CITIES A common aspect to the growth and development of many cities is easy access to shipping routes and sound, natural harbours. Many cities owe their devel- opment directly to this lifeline, the sea. Now, as changes in employment, transportation and fishing, as well as general social changes, attribute to a recent decline in traditional harbour activities, many countries have found a new role for the harbour. Besides being situated near central cities, harbours possess many assets that attract people and make for interesting redevelopment possibilities. Harbour areas were a centre for business and trade where sharp social and cultural opposites met - wealth and poverty, innovation and decline. It is possible that all these aspects, location, history and charm have been influ- ential in the emphasis put on the redevelopment of the harbour areas and the location there of activities con- nected to culture, art and entertainment, near the sea. In many instances, harbour areas have again become a focus for many activities. In Reykjavík, many people have pointed out the lack of contact between the Old Centre of Reykjavík and the harbour. The activities on Miðbakki and Austurhöfn have not been connected to the daily activities of resi- dents. During the summer, some luxury liners have 39

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.