AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2002, Qupperneq 87
stjórnarmaður og lagði fram nokkurt fé til starfseminnar.
Þegar hann veiktist og síðan féll frá hafði fjölskylda
hans ekki áhuga á áframhaldandi þátttöku og þannig
kom upp sérkennileg staða sem leiddi til þess að
Engwall þurfti að láta fyrirtækið af hendi til nýrra eig-
enda fyrir eina krónu. Þeir komust hins vegar fljótlega í
þrot og nú er fyrirtækið rekið af starfsmönnum og enn
nýjum aðilum og framleiðir um tvö hús á mánuði. Þessi
hús eru reist úr einingum með vörubílskrana á bygg-
ingarstað á þremur til fjórum tímum.
Á byggingarsýningu í Sollentuna komst ég í samband
við arkitekt Per Wáhlin sem lýsti áhuga á að hanna hús
fyrir sjálfan sig úr kerfinu. Hann festi sér lóð í Stock-
sund, rétt norðan við miðbæinn í Stokkhólmi og þegar
upp var staðið hafði hann teiknað 260 fermetra hús á
þremur hæðum með mezzanin-gólfi sem hékk í lausu
lofti. Hérþurfti nokkrar burðarþolsfræðilegar æfingar til
þess að koma þessu heim og saman og það var gæfa
mín að íslenskur byggingarverkfræðingur, Kjartan
Guðmundsson, í doktorsnámi hjá mér hafði í prófverk-
efni sínu við KTH sökkt sér niður í hönnunarútreikninga
fyrir hús úr kerfinu og gat þess vegna leyst þetta verk-
efni. Húsið er með TEEG skriðkjallara þar sem útiloft er
forhitað og þrýst upp í húsið um loftbil við útveggi þan-
nig að húsið er með nokkurs konar sambland af lofthi-
tun og gólfhita. Útveggir eru pússaðir að utan, með 200
mm EPS einangrun og gifsklæddir að innan. Þak er
með múrhellum, á stállektum að utan, 250 mm EPS
einangrun og gifsklætt að innan. í húsinu miðju og í
opnum gluggavegg til suðurs er stálgrind. Öll gólf eru
með burðarlag úr 115 mm háu bárustáli. Ofan á það
koma blikklektur sem gólfklæðning skrúfast í. Neðan á
kemur síðan falskt loft. Það markmið sem var sett við
hönnun hússins var að engin lífræn efni kæmu inn
húsið fyrr en það væri að fullu reist og lokað. Með
hituðum skriðkjallara eins og að ofan greinir er líka
komið í veg fyrir rakasöfnun í neðsta gólfi og á mótum
útveggja og sökkuls en rakaskemmdir í húsum eru tíður
vágestur í Svíþjóð. Þetta hús sem nú nefnist Villa
Wáhlin vakti mikla athygli á byggingartíma og var
tilnefnt til verðlauna sem íbúðarhús ársins 1999 í Sví-
þjóð.
Samkvæmt fyrstu útfærslu á kerfinu voru byggingar
vel einangraðar og burðargeta veggja mikil en hins
vegar kom í Ijós að hún varð of takmarkandi í bygginga-
hlutum með hliðarálag eins og í þökum og útveggjum
undir miklu vindálagi þannig að það þurfti sérstakan
milliprófil til styrkingar. Fyrir tveimur árum fann ég nýja
lausn með Z-prófílum sem einfalda mjög útfærsluna
jafnframt því sem auðveldara er að aðlaga kerfið að
mismunandi álagsforsendum. Þessi lausn sem hefur
verið notuð í þeim verkefnum sem neðan greinir hefur
verið markaðssett undir nafninu CasaBona og er nú
einkaleyfisvernduð víða um heim, m.a. á íslandi. Það
gekk nokkuð vel að fá sænskt einkaleyfi en þegar kom
að því alþjóðlega kom fram einkaleyfisumsókn frá því
fyrir stríð þar sem byggingahlutar höfðu verið settir
saman með eins konar ketkrókum. Þetta leit svipað út í
sniði og kostaði talsverðar bréfaskriftir að vinda ofan af
því.
Á haustdögum 1998 var ég boðaður til fundar hjá
Richard Sjöberg, eiganda Pampas Marina i Solna sem
er þjónustuhöfn fyrir smábáta. Eftirspurn eftir húsnæði í
Stokkhólmi var þá í hámarki og hann hafði ákveðið að
gera slag úr gamalli hugmynd um að byggja fljótandi
íbúðarhús og var kominn með teikningar að þeim. Hann
vildi hins vegar byggja með aðferðum sem þola ágjöf
og erfiðar aðstæður og þetta byggingarkerfi var það
sem hann var að leita að. Hann er maður skjótra
ákvarðana og hönnunarvinna hófst hið sama kvöld. í
byrjun janúar í tíu stiga gaddi var hafist handa við að
reisa fyrsta húsið sem síðan var tilbúið til sýningar í lok
mars. Fyrstu húsin seldust strax, þúsundir manna komu
til þess að skoða og fljótlega varð til 200 manna biðlisti.
85