AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Qupperneq 19
Borað undir götur til að leggja nýjar lagnir
Aðferö til að létta umferðaþungann á götum borgarinnarvs
Fyrirtækið Línuborun ehf. telur sig geta stuðlað að miklum sparnaði og hagræði við lagningu nýrra lagna innan og
utan borgarinnar. Hvernig væri að kynna sér þá aðferð sem Línuborun beitir, sem felst í því að bora undir vegi og
koma þannig í veg fyrir meiriháttar rask sem veldur umferðartöfum og margvíslegum öðrum vanda.
Flestir kannast við umferðarhnútana sem hafa verið daglegir á Miklubrautinni og Hringbrautinni og hafa sérfræðingar
reiknað út að umferðartafir innan borgarinnar kosti samfélagið hundruð milljóna kr. á hverju ári. Ekki er reiknað með
öðrum kostnaði, eins og þeim sem felst í því að grafa skurði, setja lögnina ofan í, setja nýjan jarðveg, þjappa hann
og ná sama rakastigi. Þetta er ekki búið því það þarf loks malbika sárið. Þegar vel gengur tekur svona framkvæmd
yfirleitt nokkra daga eða jafnvel vikur, eins og vegfarendur margir kannast við. Það tæki Línuborun aðeins þrjár til
fimm klukkustundir að vinna sama verk með tveimur mönnum við bestu aðstæður og án þess að nokkurt jarðrask
eða umferðatafir verði.
Gatnakerfi borgarinnar er löngu sprungið og það má ekki loka götum við smá framkvæmd og auka umferðaþungann
á aðrar götur í kring, það er til góð lausn að komast hjá þessu með aðferð og þjónustu sem Línuborun hefur að
bjóða upp á.
Stýranlegi jarðborinn sem Línuborun hefur yfir að ráða, getur borað undir hús, götur, ár og fleira án þess að valda
nokkru jarðraski. Hægt er að bora og koma fyrir allt að 200 metra löngu ídráttarröri á einum degi.
Tæknin er einföld og er móttakari á yfirborðinu sem segir til um hvar borkrónan er staðsett. Hægt er að sjá
nákvæmlega halla, staðsetningu og dýpt borkrónunnar hverju sinni og hvaða stefnu hún leitar. Þegar borkrónan er
komin á áfangastað er hún fjarlægð og er þá sett sú stærð af borkrónu sem nýja lögnin eða rörið á við og dregið
til baka í sömu átt. Borstærðirnar eru frá 75 - 800 millimetrar að þvermáli og togkrafturinn 12.200 kg. Hægt er að
koma fyrir allt að fjórum 110 millimetra rörum í einni borun.
Mismunandi borkrónur eru notaðar eftir því hvernig jarðvegurinn er. Hann getur því auðveldlega borað í gegnum
klappir og aðrar erfiðar aðstæður, en yfirleitt er valin sú leið sem er léttust og fljótlegust.
Það er breytilegt verð á þjónustu Línuborunar eftir sverleika röra og gerð jarðvegar sem á að bora í gegnum.
^uglýsing
L