AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Blaðsíða 38
Frekari uppllýsingar veitir:
Jón Sæmundur
Auðarson, Nonnabúð
Laugavegur 20b,
101 Reykjavík, lceland
email: nonni@dead.is
heimasíða: www.dead.is
Sími: 551 6811
„Sá sem hræðist dauðann nýtur ekki lífsins" er ólíklegt kjörorð, en það hefur gagnast Jóni Sæmundi Auðarsyni vel.
Þessi innfæddi íslendingur er listamaður og eigandi Nonnabúðar sem er verslun og sýningarsalur sem var opnuð á
afmælisdaginn þegar hann varð 35 ára, 16. júní 2003 í gamla bænum í Reykjavík. Verslunin gekk mjög vel og fluttist í
stærra húsnæði á sama svæði. Stuttu eftir að hún var opnuð fór að bera á áberandi hauskúpum alls staðar og fólk fór
að taka eftir þessu. Jón Sæmundur hefur notað hauskúpur á allt frá t-skyrtum til binda með vörumerkinu „Dead".
Jón Sæmundur lítur ekki á sig sem tískuteiknara. Hann lærði í Glasgow School of Art og er fyrst og fremst listamaður
og starfaði sem slíkur áður en hann opnaði Nonnabúð á íslandi. Hann notar mismunandi fyrirmyndir sem hann prentar
á ofangreindar t-skyrtur sem eru meðal þess algengasta sem hann framleiðir og mjög vinsælir, ásamt „blazer" jökkum
og öðrum fatnaði. Hann lítur á allan þennan „Dead“ fatnað sem sjónræna list, en jafnvel þótt þetta sé list sem ætlast
er til að verið sé í þá er alveg eins hægt að skreyta stofuveggi með þessu.
„Dead" er ekki bara vörumerki og 16. júní er ekki bara mikilvægur vegna þess að þá fæddist Jón Sæmundur heldur líka
tvífari hans, „Dead" sem fæddist þegar Nonnabúð var opnuð. „Dead“ leikur mikilvægt hlutverk í list Jóns Sæmundar og
stendur honum nærri. Árið 1992 var hann greindur HIV jákvæður. Dauðinn hefur komið aftur og aftur við sögu í list Jóns
Sæmundar en í „Dead“ hefur hann fundið leið til þess að fást við tilfinningar sínar á jákvæðan hátt. „Dead“ hefur það
hlutverk að Ijúka augum fólks upp fyrir fegurð dauðans og hjálpa því að losna við óttann sem er tengdur lokastundinni
og þess vegna er þetta vörumerki.
Rock & roll hópurinn er í beinu sambandi við Nonnabúð. „Dead" föt eru í uppáhaldi m.a. hjá gítarleikaranum Kirk
Hammett í Metallica, og aðalmanninum í Placebo, Brian Molko, og Pink, prinsessu rocksins. Allt þetta fólk kom til
íslands og heimsótti Nonnabúð og hugmyndina um „Dead". Þau hafa verið í „Dead“ fötum á ferðalögum og við önnur
tækifæri; Hammett var í „Dead" blazer jakka á frumsýningu Metallica: „Some Kind of Monster" í New York. Tvær af
mest spennandi rock-hljómsveitum á íslandi, Mínus og Singapore Sling, styðja líka þessa hugmynd og eru oft í þess-
um fötum á hljómleikum. Mínus var á forsíðu tímaritsins Kerrang! inni í „Dead“ innsetningu, skreyttir með hauskúpu
vörumerkinu.
„Dead“ er stöðugt að þróast og ekkert að deyja út. „Sá sem hræðist dauðann nýtur ekki lífsins" - hugmyndin er „Dead“
og lifandi. ■
3 8 avs
xJL-ty