AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Blaðsíða 36
Guöbjörg Gissurardóttir, forstöðumaður
Ég óska öllum hönnuðum landsins til
hamingju með fyrsta vísinn að lang-
þráðri hönnunarmiðstöð. Að baki
samstarfsvettvangi um hönnun, sem
er 3 ára tilraunaverkefni, standa iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytið, Sam-
tök iðnaðarins, Útflutningsráð
íslands, Iðntæknistofnun íslands,
Reykjavíkurborg og Form ísland.
Átta manna stjórn hönnunarvett-
vangsins er skipuð eftirfarandi:
Matthías Páll Imsland iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu (stjórnarfor-
maður), Davíð Lúðvíksson Samtök-
um iðnaðarins, Vilhjálmur J. Árna-
son Útflutningsráði, Berglind Hall-
grímsdóttir, Impru, og fyrir hönd
Form ísland eru þau Hrafnkell Birgis-
son, Páll Hjaltason og Ásrún Krist-
jánsdóttir, fyrir hönd Reykjavíkur-
borgar er væntanlegur fulltrúi.
Ég var ráðin af stjórninni sem
framkvæmdastjóri hönnunarvett-
vangsins og tók til starfa nú í -
byrjun maí. Fyrir lá heilmikil for-
vinna sem margir hafa komið að.
Stefnumótunarvinna var langt á
Gláma Kím
veg komin þegar ég hóf störf og
hafa fyrstu vikurnar í nýja starfinu
að mestu leyti farið í það að klára
og móta þá verkefnastefnu sem
vettvangurinn mun taka. Mörg verk-
efni liggja fyrir en þegar valin er for-
gangsröð er markmið vettvangsins
haft að leiðarljósi, en það er að
standa fyrir faglegu og virku hönn-
unarsamfélagi sem kynnir, hvetur
og eflir íslenska hönnuði og starfs-
umhverfi þeirra, jafnt innanlands
sem utan. Það sem liggur einna
mest á að framkvæma, fyrir utan
að afla fjármagns, er að koma upp
öflugum rafrænum gagnagrunni
sem nýtast mun hönnuðum í leit
að upplýsingum um styrki, ráðgjöf,
framleiðslufyrirtæki, þjónustu, efni,
uppákomur innanlands sem og
erlendis, áhugaverðar greinar, vefi,
bækur o.fl. Einnig mun vefurinn
nýtast öllum þeim sem hafa áhuga
á íslenskri hönnun og hönnuðum.
Stefnt er að því að koma vefnum,
sem til að byrja með hefur lénið
www.icelanddesign.is
upp sem allra fyrst þó hann fái
ekki sína endanlegu mynd fyrr en
í lok þessa árs. Hönnunardagar er
annað verkefni sem mikið verður
lagt uppúr og allt gert til að þeir
megi verða sem skemmtilegastir,
nýtast sem flestum hönnuðum
og framleiðendum ásamt þvi
að vekja áhuga almennings.
Stefnt er að því að vera með
hönnunardagana í haust, nánar
tiltekið frá 14. til 23. október.
Dagsetningin er í raun það
eina sem búið er að ákveða,
en ég sé fyrir mér sýningar,
samkeppni, viðurkenningar,
fyrirlestra, vinnustúdíó
o.m.fl. Bjartsýni mín á það,
að hægt verði að gera
hönnunardagana innihaldsríka
og veglega, vbyggist á þeirri
staðreynd að í ár er skandinavískt
hönnunarár. Nágrannalönd okkar
hafa gert hönnun hátt undir
höfði það sem af er árinu og er
ekkert lát þar á. Hönnunarárið
hefur aftur á móti rokið fram hjá
okkur íslendingum m.a. vegna
þess að enginn vettvangur hefur
verið til staðar til þess að taka
slík mál uppá sína arma. Ég fyrir
hönd hönnunarvettvangsins mun
ganga í þetta mál og vekja athygli
stjórnvalda á ábyrgð og þörf á
fjárhagslegum stuðningi til að hægt
verði að gera lok hönnunarársins á
íslandi bæði gagnleg og eftirminni-
leg. Ég sé enga ástæðu til að ætla
annað en að íslensk stjórnvöld taki
þetta mál vel upp.
Það eru mörg önnur þörf og
spennandi verkefni framundan sem
ég hef ekki tíundað hér, en fyrir þá
sem vilja kynna sér starfsemi hönn-
unarvettvangsins frekar þá er ég
með aðstöðu hjá Impru, nýsköpunar-
miðstöð sem staðsett er uppá
Keldnaholti. Best er að ná í mig í
gegnum síma 570-7266 eða í gegn-
um tölvupóst, honnun@iti.is.
Hönnunarvettvangurinn er hér til
að vinna fyrir alla íslenska hönnuði,
arkitekta, gullsmiði, grafíska hönn-
uði, iðnhönnuði, fatahönnuði, leir-
listafólk o.fl. Hikið ekki við að hafa
samband og kanna hvað vettvang-
urinn getur gert fyrir ykkur. ■
Bergvík -Oglur, glerskálar / Glass bowls.
36 avs