AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2005, Blaðsíða 46
ingu tónlistarhúss og ráðstefnu-
miðstöðvar við Reykjavíkurhöfn.
í Reykjavík er áhætta HR á að-
lögunartíma minni og einnig er
óvissa minni um framtíðarþróun.
í Garðabæ var aftur minni óvissa
um skipulagsheimildir vegna upp-
haflegra framkvæmda, en það er
fyrst og fremst spurning um tíma og
getur ekki vegið þungt í mati sem
nær til framtíðarstaðsetningar HR.
Vandasamt val milli
tveggja góðra kosta
Áhættuþættirnir eru því meiri í Urr-
iðaholti. Áhættan skiptir HR miklu
máli þar sem skólinn hefur ekki
mikinn fjárhagslegan styrk og hann
þarf að byrja vel á nýjum stað þegar
fyrstu árin. Mótaðir innviðir í Vatns-
mýrinni, minna rask frá núverandi
stöðu og sterk staðsetning frá
byrjun minnka áhættu HR á
aðlögunartíma.
Framtíðarhugmyndin í Urriðaholti
byggir á samfélagsgerð eða há-
skólaþorpi, sem ekki hefur hliðstæðu
á íslandi. Margir þættir þurfa að
spila þarna saman svo hugmynda-
fræðin gangi upp og þetta hefur oft
verið erfitt verkefni erlendis. Reikna
má með að það taki langan tíma
að þróa þessa hugmynd og jafn-
vel spurning hvort hún muni njóta
hljómgrunns. Það breytir því ekki
að Urriðaholt er frábær staður og
á mikla framtíð fyrir sér sem bygg-
ingarland. í Vatnsmýrinni er byggt á
nýjum stað með nýjan skóla í um-
hverfi sem er tiltölulega mótað og í
góðum tengslum við þekkingar- og
vísindasamfélag, miðju atvinnulífs
og margvíslegrar háskólatengdrar
starfsemi. Áhættan er því mun meiri
í Urriðaholti í Garðabæ.
Samkeppnisstaða HR
sterkari í Vatnsmýrinni
Eftir ítarlegt mat á þessum valkost-
um var niðurstaðan skýr:
• Báðir valkostir uppfylla í megin-
atriðum kröfur um rýmisþörf
• Nokkur munur er á skipulags-
legum og tæknilegum mats-
atriðum milli valkosta, en enginn
einn þáttur er þar ráðandi og
þeir jafna hver annan út
• Stefnumarkandi þættir og áhætta
eru aftur á móti mest afgerandi
og ráðandi um ákvarðanatöku um
staðsetningu og þar komast allir
sem voru beðnir um álit á þessu
að sömu niðurstöðu: Vatnsmýrin
er hagstæðari valkostur.
Það sem má læra af þessu
verkefni er m.a. það að þegar um
flókið, vandasamt og afar áríðandi
mál er að ræða þarf sérstaklega
að vanda sig með verklagið og láta
ekkert draga athyglina frá megin-
markmiðunum Það eru t.d. algeng
mistök við val á hugbúnaði og
ýmsum öðrum lausnum að falla fyrir
útliti, sölumennsku og aukahlutum
sem skipta litlu eða engu máli þegar
horft er til tilgangs búnaðarins. Telja
má að skýr sýn HR á framtíðina,
hlutverk háskólans og leiðarljós hans
ásamt faglegu mati á því hvernig
staðsetning skólans fellur að þess-
um þáttum hafi ráðið miklu um stað-
arvalið og auðveldað verulega
ákvörðun forsvarsmanna háskól-
ans. í þessum anda var komist að
yfirvegaðri og faglegri niðurstöðu.
Vonandi mun staðarvalið verða til
heilla fyrir HR um ókomna framtíð
og nú verður vandað til þeirrar
vinnu sem framundan er. ■
Uniting HR and THI:
Choosing a future location
Þorkell Sigurlaugsson, Managing Director of the Development Department of the University of Reykjavík
Uniting the University of Reykjavík
(UR) and the Technical University
of lceland (TU) is a very special
task where the powers of a state
and private university with a differ-
ent backgrounds and cultures are
united. With this unification a new
vision for the future, a new role,
and a new policy were created. In
addition, a new future location was
found for the united university. At
the same time eleven new courses
of study were founded that were
not previously taught in UR or TU.
The location of the new university
will have a decisive bearing on its
future development and this issue
has received a great deal of atten-
tion. I will draw a rough picture of
how this important decision was
reached, keeping in mind that that
the choice of a location would great-
ly affect the future course of UR.
The University of
Reykjavik: Its future
role and aims
ln the future, UR is to become an
international university with both
lcelandic and foreign students, pro-
viding excellent education, as well
as housing and research facilities
that can compete with the best for-
eign universities. Fostering collabo-
ration with research institutions and
46 avs