Harmonikublaðið - 15.09.2020, Qupperneq 7

Harmonikublaðið - 15.09.2020, Qupperneq 7
frá 1982 og alveg þar til ég til Akureyrar 1987. Það var landsmót á sumarið 1987 og þá spilaði ég með Harmonikufélagi Reykjavíkur en eftir það gekk ég í félagið hérna og hef spilað með stórsveit FHUE frá 1987 þar til fyrir ári síðan, mest í fyrstu og annarri rödd en annars í öllum röddum. Svo spiluðum við Flosi Sigurðsson mikið saman, oft með Rafni Sveinssyni og öðrum meðleikurum. Og ekki má gleyma kvintett FHUE sem lengi spilaði saman og oftast þá meira klassíska tónlist. I honum voru lengst af auk mín bæði Flosi, Einar Guðmundsson, Guðni Friðriksson og Sigurður Indriðason. Með FHUE spilaði ég bæði á tónleikum og dansleikjum og tók þátt í landsmótum. Eina landsmótið sem ég hef ekki farið á, var landsmótið á Isafirði 2017, annars hef ég farið á þau öll frá því ég gekk í harmonikufélag. Spilað úti í náttúrunni í Hamarsdal í Hamarsfirði Hvenær eignaðist þú fyrstu harmonikuna? Eg byrjaði að spila í þessum ferðum í kringum 1980 og það er þá um 1982 sem ég fæ mér mína fyrstu harmoniku. Hún var rauð og áberandi lituð, hún var tékknesk, ekki merkilegt hljóðfæri en nothæf. Svo ég fór með hana í ferðir og spilaði á kvöldvökum í Þórsmörk, bæði fyrir dansi og fjöldasöng. Var ég stundum einn að spila og stundum með fleirum. Núna á ég Borsini nikku, sem ég keypti fljótlega á eftir rauðu harmonikunni, ég átti eina mjög stutt þarna á milli en keypti þessa mjög lítið notaða af einhverjum sem fannst hún of þykk og fyrirferðamikil enda er Getur þú sagt í stuttu máli ffá starfi þínu með harmonikufélögunum? Ég fór og fékk tilsögn með vinstri hendina, til að komast upp á lag með hana, bæði hjá Emil vini mínum og hjá Karli Jónatanssyni. I framhaldinu gekk ég í Harmonikufélag Reykjavíkur sem Karl Jónatansson stýrði og lék með hljómsveitinni þar, eina félagið á þeim tíma sem var með fullt af konum að spila. Hann var að kenna svo mörgum sem hann fékk til að koma og spila með félaginu. Eg var hún fimm kóra. Hún hefur hentað mér vel og hana hef ég átt síðan. Hefúr þú samið mikið af lögum? Nei, það má segja að það sé ekki neitt, tvö, þrjú lög kannske. Atti eitt landsmótslag en annars hef ég ekki gert neitt af þessu og aldrei fundið mikla þörf fyrir að semja, en það er kannske vitleysa, maður hefði kannski átt að gera meira af því. Eg samdi bara ef það vantaði lög fyrir eitthvert tilefni. Stórsveit Harmonikufélags Reykjavíkur 1987, Hörður er annar frá vinstri ífremstu röð Hvaða tegund tónfistar fínnst þér skemmtilegast að spila? Það er erfitt að svara því, ég hef alltaf verið veikur fyrir danstónlist, hafði alltaf gaman af að dansa sjálfur og dansaði mikið, svo það væri kannski númer eitt en annars spila ég hvað sem er. Eg hef líka spilað mikið klassíska tónlist og í gegnum tíðina hlustað mikið á klassíska tónlist. En danstónlistina hef ég iðkað meira en aðra. Nú átt þú tilkomumikið nótnasafn sem félagar FHUE hafa fengið að leita í, hvernig kom það safn til? Nótnasafnið kom eiginlega af sjálfu sér, það er ekki svo að maður geti lært lög án þess að hafa nótur fyrst. Það gefur manni líka færi á að bæta við mörgum lögum og læra ný sem maður þekkir ekki. Eg var alltaf að fá mér nótur til að læra ný lög, stundum keypti ég þær á ferðalögum og í seinni tíð í gegnum netið. Hvernig heldur þú að ffamtíðin verði hjá harmonikufélögum landsins? Framtíðin, hún getur verið björt. Ef við komumst yfir þessa skrítnu tíma, þá held ég að hún verði björt. Við látum þetta verða lokaorðin hjá Herði og þökkum honum kærlega fyrir að gefa sér tíma til að segja frá sínum harmonikuhögum. AHJ Stórsveit FHUE vorið 2019, Hörður er þriðji frá hagri í miðröð 7

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.