Harmonikublaðið - 15.09.2020, Qupperneq 19

Harmonikublaðið - 15.09.2020, Qupperneq 19
Jóhann Hólm Ríkarðsson f. 8. ágúst 1964 - d. 12. júní 2020 Undir Dalanna sól þegar sólargangurinn er hvað lengstur og sumarið farið að brosa við sveitinni okkar, kvaddi okkur góður vinur og félagi, Jóhann Hólm Ríkarðsson, hann Jói trommuleikarinn okkar. Jói ólst upp í Gröf í Laxárdal í Dalasýslu, tók ungur við sauðfjárbúi foreldra sinna og bjó þar allt sitt líf. Hann undi sáttur við sitt í sveitinni, mikill fjölskyldumaður og góður bóndi. Varð t.d. Islandsmeistari í rúningi árið 2012 og það er ekki heiglum hent. A grunnskólaárunum var hann á kafi í tónlist og spilaði í skólahljómsveitum á trommur. Þegar fjölskyldan stækkaði var trommusettið sett á hliðarlínuna en aldrei langt undan. Þeir feðgar höfðu smáaðstöðu til að spila í geymsluskúr niðri við þjóðveginn. Svo var það einn daginn að Rikki trommari Nikkólínu og faðir Jóa ákvað að nú væri hann orðinn heldur gamall til að spila heilu böllin. Nefndi við okkur Nikkólínufélaga hvort það væri ekki upplagt að strákurinn tæki við. Það varð úr og við fengum þennan úrvals trommuleikara til liðs við okkur. Þeir spiluðu nú saman heilu böllin feðgarnir, Jói við trommurnar og Rikki á saxófón, bongótrommur og alls konar ásláttar- hljóðfæri. Þetta var góður tími en alltof stuttur. Fyrir einu og hálfu ári síðan greindist Jói með ólæknandi sjúkdóm og nú er vegferðinni lokið eftir hetjulega baráttu. Við þökkum fyrir skemmtilegar samveru- stundir, frábæra spilamennsku og góða viðkynningu. Laxárdalur, lítið blóm, lát mig hvílast viðþinn barm, látþinn sœla svanahljóm signa gleði mína og harm, yfir lífs míns leyndardóm leggðu blíttþinn mjúka arm. Laxárdalur, lítið blóm, lát mig hvílast viðþinn barm. (Jóhannes úr Kötlum) Við sendum innilegar samúðarkveðjur til Jónínu og fjölskyldunnar. Kveðja frá Nikkólínufélögum Höfúm tekið að okkur umboð fyrir þessi vönduðu hljóðfæri. Nú geta allir valið draumaharmonikuna sína. veiia: Hildur Petra s: 888-0550 og Jónas Pétur s: 897-2747 harmonikan@harmonikan.is Hildur Petra og Jónas Pétur á facebook V___________________________________________________________________ J 19

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.