Harmonikublaðið - 15.09.2020, Síða 24

Harmonikublaðið - 15.09.2020, Síða 24
Frettir ur orginni Félagar úr FHUR d harmonikuhátíðinni í Arbœjarsajhi Guðmundur Samúelsson og Grétar Geirsson komnir á safn Nýtt starfsár hófst með aðalfundi FHUR 26. maí 2020 í sal Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Þá var kjörin ný stjórn og var fráfarandi stjórn að mestu leyti endurkjörin. Fráfarandi stjórnarmönnum var þakkað fyrir vel unnin störf og ný stjórn boðin velkomin til starfa. Stjórnina skipa: Elísabet H Einarsdóttir formaður, Gyða Guðmundsdóttir varaformaður, G. Helgi Jensson gjaldkeri, Gunnar Gröndal ritari, Harpa Agústsdóttir meðstjórnandi og varamenn eru Bjarni Gunnarsson og Ulfhildur Grímsdóttir. Skemmtinefndin var endurkjörin líka með Friðjón formann hennar og auk hans eru Erlingur Helgason, Guðrún Erla Aðalsteinsdóttir, Kristinn hennar Lísu, Páll Elíasson og Sigurður Harðarson. Um miðjan júlí var haldin Harmonikuhátíð í Árbæjarsafni og var formaður beðinn um að útvega harmonikuleikara. Harmonikuhátíðin var stofnuð af Karli Jónatanssyni harmoniku- leikara og kennara og er hún nú haldin af sonum hans, Inga og Jónatani, í minningu föður þeirra. Við fengum Reyni Jónasson, Sigvalda Fjeldsted og Odd frænda hans, Þorleif Finnsson og Pál Elíasson og hljómsveitina „Urkoma í grennd“ til að koma fram fyrir hönd FHUR. Auk þessara voru félagarnir Guðmundur Samúelsson og Grétar Geirsson, einnig tvær hljómsveitir frá Harmonikufélagi Reykjavíkur og ein frá Suðurnesjamönnum. Stjórnin hélt fund í júlí og var aðalfundarefnið hátíðin að Borg um verslunarmannahelgina. Við höfðum þegar greitt staðfestingargjald fyrir félagsheimilið á Borg. Þá var líka farið yfir styrkveitingar, harmonikukaup til tónlistarskóla og stuðning FHUR til ungmenna frá upphafi félagsstarfs. Annar fundur stjórnar var á Borg og þá varð ljóst að af hátíðinni gæti ekki orðið þetta árið vegna kóvítunnar. Engu að síður skemmtu menn sér saman við harmonikuleik og söng og ljúfa samveru. Við Gyða og Pétur Bjarna fórum í heimsókn á Sólheima og glöddum marga bæði gesti og heimilismenn. Verslunarmannahelgin flaug hjá og allir fóru kátir heim. Friðjón var beðinn um að útvega harmoniku- leikara aðra helgina í ágúst til að spila fyrir brekkusöng og balli á Hótel Flatey á Breiðafirði. Hann sendi boltann á formanninn sem ákvað að taka þetta að sér. Við Harmonikufrænkurnar (Elísabet og Gyða) spiluðum þar á föstudag í hótelinu hjá Elínborgu hótelstýru og líka á laugardagskvöld. Fólkið virtist helst vilja syngja en börnin fengu skemmtilega syrpu og nutu þess fram í fingurgóma að dansa. Gyða heyrði á tal fólks sem var að velta þessum konum fyrir sér og hótelstýran sagði að þær væru í Harmoniku- hljómsveit Islands. Við fórum í góðan göngutúr um eyjuna á laugardagsmorgni og hann hékk þurr þann tíma. Það var Ijúft og gott að gista á Hótel Flatey og maturinn einstaklega ljúffengur og ferskur. Nokkrir félagar hafa verið duglegir að heimsækja tjaldsvæðið að Borg í Grímsnesi og PdllElíasson ogÞórleijur Finnsson íleitað rétta tóninum í Dillonshúsi þar hefur verið spilað og sungið flestar helgar. Gyða átti afmæli í byrjun júlí og fórum við nokkrir félagar í skemmtilega heimsókn til hennar á Litlu harmonikuhátíðina á Norðfirði. Mjög eftirminnilegir dagar og sólríkir og margt að sjá og skoða, sérstaklega Páskahelli í allri sinni dýrð. Núna vonum við bara að Eyjólfur fari að hressast af kóvítinni og að harmonikuæfingar og dans geti hafist í október. Með góðum harmonikukveðjum til ykkar allra, Elísabet H Einarsdóttir formaður FHUR Myndir Reynir Elíesersson Munið myndasíðuna á netinu: www.harmoniku-unnendur.com 24

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.