Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 11
nemasambandi íslands og Sæmundur Friðriksson frá
Stéttafélagi bænda.
Þessa ágætu gesti okkar býð ég alveg sérstaklega
velkomna þar eð þeir eru fulltrúar þeirra félagssam-
taka, er Alþýðusambandið hlýtur jafnan að hafa mikla
samvinnu við. Þeir munu nú hér á eftir flytja þinginu
kveðjur samtaka sinna.
Félagar og gestir! íslenzk alþýðusamtök hafa jafnan
unnað frelsi og lýðræði og störf þeirra hafa miðazt við
það, að koma í veg fyrir, að íslenzkt alþýðufólk hlyti
þau örlög að mynda hóp úrræðalauss öreigalýðs, er
yrðu viljalítil verkfæri í höndum harðsvíraðs atvinnu-
rekendavalds og fjárplógsmanna. Með tilliti til þess
mikla hlutverks, sem alþýðusamtökin hafa að inna af
höndum í okkar fámenna þjóðfélagi og í fullri vitund
þeirrar ábyrgðar, er á okkur hvílir, bið ég ykkur, full-
trúar góðir, að ganga til starfa hér á þinginu.
Ég óska og vona að þessu Alþýðusambandsþingi, sem
er hið 23. í röðinni, takist að vinna að farsælli lausn
þeirra mála, er fyrir því liggja, svo að til hagsældar
verði fyrir alþýðu þessa lands og til blessunar fyrir
þjóðarheildina.
Ég lýsi hér með yfir því, að 23. þing Alþýðusambands
Islands er sett.
A þinginu voru mættir sem gestir:
Frá danska verkalýðssambandinu, Carl P. Jensen.
Frá Bandalagi starfsmanna ríkis- og bæja, Olafur
Björnsson.
Frá Farmanna- og fiskimannasambandi íslands, Guð-
bjartur Ólafsson.
Frá Iðnnemasambandi íslands, Skúli Agústsson.
9