Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Side 35

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Side 35
og reikninga sambandsins, en að þeim loknum voru reikningarnir samþykktir. Álit flestra nefnda voru samþykkt með litlum breyt- ingum af þinginu svo og tillögur í ýmsum málum frá einstökum fulltrúum og eru þær allar birtar hér á eftir. Hinn 28. nóvember fór fram kjör sambandsstjórnar. Samkomulag um uppstillingu náðist ekki í kjörnefnd og komu því fram tvær tillögur, annars vegar frá Garð- ari Jónssyni, Aðalgeir Sigurgeirssyni og Friðleifi Frið- rikssyni, en hins vegar frá Eðvarð Sigurðssyni, Jóni Rafnssyni og Tryggva Helgasyni. Tillögur þeirra fyrrnefndu voru samþykktar með miklum atkvæðamun og fór kosning þannig að Helgi Hannesson var endurkjörinn forseti með 160 atkvæð- um, Eðvarð Sigurðsson fékk. 109 atkvæði. Svipað fói um kosningu annarra sambandsstjórnarmanna. Varamenn í sambandsstjórn voru sjálfkjörnir eftir tillögu þeirra Garðars, Aðalgeirs og Friðleifs, þar sem ekki voru gerðar tillögur um aðra. Hin nýja sambandsstjórn er þannig skipuð: A. Miðstjórn: Forseti: Helgi Hannesson. Varaforseti: Jón Sigurðsson. Ritari: Ólafur Pálsson. Meðstjórnendur úr Reykjavík og Hafnarfirði: Borgþór Sigfússon, Magnús Ástmarsson, Óskar Hallgrímsson, Sigurjón Jónsson, Sigurrós Sveinsdóttir, Skeggi Samúelsson. 33

x

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...
https://timarit.is/publication/1793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.