Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Page 39

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Page 39
nægilegrar vinnu, með réttmætum launum, er skapi þeim örugga lífsafkomu og skilyrði til viðhlítanlegs menningarlífs. Þingið krefst þess, að horfið verði frá þeirri stefnu, sem leitt hefur atvinnuleysi og vaxandi fátækt yfir alþýðu landsins. Þingið ítrekar þá samþykkt síðasta sambandsþings, um, að vandamál atvinnuveganna verði eins og nú er komið málum, aðeins leyst með öflun nýrra markaða, fjölbreyttari vöruframleiðslu, lækkun reksturskostn- aðar, afnámi hins mikla gróða verzlunarstéttarinnar, lækkun vaxta, aukinni tækni, bættum vinnuaðferðum og með algjörum niðurskurði á skriffinnsku og óþarfa nefndabákni ríkisvaldsins. Þingið mótmælir innflutningi á erlendu verkafólki á atvinnuleysistímum og telur að atvinnuleyfi útlending- um til handa eigi að vera bundið samþykki verkalýðs- félags viðkomandi staðar, og krefst þess að um þetta fari að lögum. Þingið mótmælir harðlega þeirri ráðstöfun ríkis- valdsins að leggja niður vinnumiðlunarskrifstofur í kaupstöðum landsins, svo lengi sem öllum vinnufærum mönnum er ekki tryggð næg atvinna, telur þingið brýna nauðsyn bera til að komið verði á stofn atvinnuleysis- tryggingum og atvinnubótasjóðir stofnaðir. Fyrir því skorar sambandsþingið á alþingi það er nú situr að afgreiða lög um hvorutveggja. Dýrtíðar- og kaupgjaldsmál. Sívaxandi dýrtíð er m. a. stafar af gengislækkuninni, bátagjaldeyrinum svonefnda, hinum illræmda sölu- 37

x

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...
https://timarit.is/publication/1793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.