Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 40
skatti, hátollum á nauðsynjum, afnámi verðlagsákvæða
og verðlagseftirlits, er haft hefur í för með sér skefja-
laust álagningarokur, hefur nú rýrt kaupmátt launanna
svo að óviðunandi er með öllu.
Vegna framangreindra ástæðna og annarra, er ýtt
hafa undir ört vaxandi dýrtíð, þá hefur miðstjórn Al-
þýðusambandsins þráfaldlega orðið að hvetja til samn-
ingsuppsagna og knýja fram úrbætur til þess að jafna
metin.
Og þrásinnis hefur miðstjórn Alþýðusambandsins og
þing þess bent á þá hættu, sem af kynni að hljótast, ef
stöðugt væri haldið áfram á braut sívaxandi dýrtíðar,
sem þá mundi leiða af sér samdrátt atvinnulífsins eða
jafnvel stöðvun þess.
En hér hafa verkalýðssamtökin talað fyrir algjörlega
daufum eyrum ríkisvaldsins, sem mestu veldur um
hvernig á er haldið.
Nú er svo komið að bilið milli framfærsluvísitölu og
kauplagsvísitölu nemur 10 stigum. Þótt ekki væri nema
til að brúa þetta bil, þyrfti kaup verulega að hækka í
krónutölu, og væri samt ekki um neina verulega kaup-
hækkun að ræða. En sé gerður samanburður á kaup-
mætti launanna nokkur síðustu árin, kemur í ljós, að
verkafólk er nú langt um lengri tíma að vinna fyrir
sama vörumagni en áður var, enda slíkt bein afleiðing
af þeirri miklu verðhækkun, sem orðið hefur á öllum
neyzluvörum almennings.
Margar neyzluvörutegundir hafa hækkað um 100%—
500%, þ. e. tvö til sexfaldast í verði. Þá hafa öll opin-
ber gjöld hækkað svo, að t. d. giftur maður með 3 börn
38