Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Page 43
gerðir fiskibáta, og með það fyrir augum, að hagnýta
sem bezt bæði grunnmiðin og fjarlægari mið til fisk-
og síldveiða.
Að gerðar verði ráðstafanir til þess að síldveiðiskipin
geti hafið síldveiðar með reknetum síðari hluta sumars
og með því keppt að því að afla sem mestrar saltsíldar
og með því hagnýta sem bezt hinn tiltölulega örugga
saltsíldarmarkað. Ennfremur verði gerðar ráðstafanir
af því opinbera til þess að vélbátaflotanum skapist skil-
yrði til að stunda veiðar að haustinu til.
Að fengið verði til landsins fiskileitarskip, búið full-
komnustu tækjum til fiskleita, til að létta íslenzku
veiðiskipunum fiskileitina svo sem tök eru á.
Þingið telur að áherzlu beri að leggja á vöruvöndun
við framleiðslu úr sjávarafurðum svo sem kostur er,
og hvetur alla þá, er að framleiðslunni starfa, að hafa
það jafnan í huga við störf sín.
Að aukin verði sem mest fjölbreytni í framleiðslu
sjávarafurða s. s. með niðursuðu og reykingu fisks í
stórum stíl í nýtízku verksmiðju og kappkcsta að vinna
sem verðmætasta vöru úr afla landsmanna.
Þingið telur eitt mesta hagsmunamál útvegsins, að
útgerðarnauðsynjar fáist jafnan með réttu verði en
þurfi ekki að sæta óhóflegri verzlunarálagningu, og
skorar því á viðkomandi stjórnarvöld að tryggja nægan
innflutning á útgerðarvörum á lægsta verði.
Ríkið taki upp innflutning á olíum og benzíni, og selji
samtökum útgerðarmanna með lægstu álagningu.
Þá telur þingið nauðsyn bera til að öllum fiskibát-
um, smærri sem stærri, verði séð fyrir nægilegu
rekstursfé og vextir lækkaðir.
41