Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Page 44
Að gerðar verði ráðstafanir sem duga til þess, að
þeir sem kaupa aflann raki ekki saman milljóna milli-
liðagróða á þeim viðskiptum á sama tíma, sem útvegur-
inn stendur höllum fæti fjárhagslega og fiskiskipum
tryggt fyllsta verð fyrir aflann. Gengið verði örugglega
frá því í samningum að sjómenn fái undantekningar-
laust sama verð fyrir aflahlut sinn, sem útgerðarmanni
er greitt fyrir sinn hlut hverju sinni.
Þingið telur sjálfsagt að A. S. I. beiti sér fyrir því
fyrir hverja vertíð, að komið verði á sex manna samn-
inganefnd, þremur frá útgerðarmönnum er ekki hafa
að neinu leyti hagsmuna að gæta sem kaupendur á
fiski og þrem mönnum frá samtökum sjómanna sem
annist samninga um fiskverð við frystihúseigendur og
aðra fiskkaupendur.
Þingið krefst þess að einskis sé látið ófreistað um
öflun nýrra markaða, og allt gert sem unnt er til að
vinna aftur þýðingarmikla markaði sem glatað hefur
verið á síðari árum, og greitt sé fyrir afurðasölunni
eins og frekast er kostur.
Þá krefst þingið þess, að útflutningsverzlunin með
sjávarafurðir verði leyst úr þeim einangrunarfjötrum
sem hún er nú í.
Þingið telur nauðsynlegt, að með togurum og öðrum
íslenzkum fiskiskipum, sem veiðar standa við Græn-
land verði haft birgðaskip fyrir helztu nauðsynjar skip-
anna og verði í þeim læknir og rúm fyrir slasaða menn
og sjúka.
Þingið leggur einnig áherzlu á að Islendingum verði
tryggður afnotaréttur af minnst tveim höfnum á vestur-
strönd Grænlands í nánd við beztu fiskimiðin.
42