Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 54
11. Áskorun til alþýðunnar um að kaupa innlenda iðn-
aðarframleiðslu.
23. þing A. S. I. skorar eindregið á alla meðlimi al-
þýðusamtakanna að láta innlenda iðnaðarframleiðslu
sitja fyrir í vörukaupum sínum og hlúa þannig á raun-
hæfan hátt að hinum unga iðnaði, jafnframt því, sem
stuðlað er að stóraukinni atvinnu í verksmiðjuiðnað-
inum.
Tillagan frá Eggert G. Þorsteinssyni.
FRÁ TRYGGINGA- OG ÖRYGGISMÁLANEFND.
Varðandi rannsókn sjóslysa.
23. þing A. S. í. ályktar að skora á stjórnarvöld lands-
ins, að láta framfylgja í sambandi við rannsókn sjó-
slysa, eftirfarandi atriðum:
1. I hvert sinn, sem slys verða um borð í skipum, sé
skipstjóra skylt að láta fara fram réttarrannsókn
strax þegar skipið kemur í höfn, jafnt erlendis sem
hérlendis, og séu vitni þau, sem kölluð eru fyrir,
ekki valin af skipstjóra heldur þeim, sem réttinum
stjórnar, í samráði við stjórn stéttarfélags þess manns,
sem fyrir slysinu varð. Á Islandsmiðum skal skip
strax leita til hafnar, ef um dauðaslys er að ræða.
2. Að ekki sé látið hjá líða að leita læknishjálpar, strax
og menn verða fyrir meiðslum, svo full vissa fáist
fyrir því, hvað alvarleg þau eru.
3. Að réttarrannsóknin vegna sjóslysa séu fullkomlega
framkvæmdar, á sambærilegan hátt og slys þau, sem
verða á landi, t. d. bifreiðaslys.
4. Þegar slys ber að höndum á hafi úti, og orsakir eru
52