Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Blaðsíða 57
lágar og skorar á alþingi það er nú situr, að hækka þær
verulega.
23. þing A. S. I. telur dagpeningagreiðslu almanna-
trygginganna í slysatilfellum algjörlega ófullnægjandi
og skorar á alþingi að hækka þær a. m. k. um helming.
FRÁ FRÆÐSLUNEFND.
23. þing A. S. í. telur að þrátt fyrir allfullkomna
fræðslumálalöggjöf og sívaxandi aðsókn að skólum
landsins, sé full þörf á að A. S. I. stofni til sérstakrar
fræðslu innan sinna vébanda í þjóðfélags- og verka-
lýðsmálum, almennum félags- og atvinnumálum.
Fræðslu þessa ætti að framkvæma þannig:
1. A námsskeiðum, sem haldin væru á nokkrum stöð-
um, er valdir væru með það fyrir augum, að sem
hentugast og ódýrast yrði að sækja þau.
2. Með erindum, sem flutt væru í ríkisútvarpinu með
reglubundnu millibili.
3. Með því að efla tímaritið Vinnuna, svo að hún yrði
ómissandi fræðslurit og handbók fyrir hvern vinn-
andi mann.
En þar sem það er ljóst, að sambandið brestur fé til
framkvæmda þessara mála, þá samþykkir þingið að
fela væntanlegri sambandsstjórn að fara þess á leit við
alþingi það sem nú situr, að það veiti A. S. I. styrk til
þessara fræðslustarfsemi að upphæð allt að kr. 150
þúsund og rökstyðja beiðni þessa nánar.
55