Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Side 67

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 23.11.1952, Side 67
við unað lengur, þá samþykkir 23. þing Alþýðusam- bands Islands að fela væntanlegri sambandsstjórn að gera ítarlegar reglur um vinnuskiptinguna, og leggur þingið til að sambandsstjórn verði búin að ganga frá reglum í þessu efni fyrir lok marz mánaðar n. k., og kalla þá saman bifreiðastjóraráðstefnu til ákvörðunar í þessu máli. Jafnframt samþykkir þingið að kjósa 5 manna nefnd úr hópi atvinnubifreiðastjóra til aðstoðar sambands- stjórn að undirbúningi þessa máls. Samkvæmt ábendingu fundarins kaus sambands- þingið eftirtalda fimm menn í nefndina. Hermann Guðmundsson, Hafnarfirði, Jón Guðlaugs- son, Reykjavík, Björgvin Sigurðsson, Stokkseyri, Leif Gunnarsson, Akranesi, Lúðvík Jónsson, Keflavík. Um lækkun skatta. 23. þing A. S. í. telur að lækkun tolla og skatta sé eitt mesta hagsmunamál launþega. Alítur þingið, að lækkun tolla og skatta á nauðsynjavörum feli í sér raunhæfar kjarabætur, sem stefni til heilla öllum al- menningi í landinu. Vill þingið í því sambandi benda á eftirfarandi atriði: a) Að afnumdir verði með öllu tollar á nauðsynja- vörum. b) Persónufrádráttur sé hækkaður til muna frá því sem nú er. c) Að söluskattur verði lækkaður á þeim vörum, sem fólk getur sízt án verið. Felur þingið væntanlegri sambandsstjórn, að koma

x

Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ...
https://timarit.is/publication/1793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.