Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Side 9

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Side 9
8 Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 708 8. tbl. 28. árg. 9 Frábær árangur í frágangi gamalla náma Gunnar hefur haft umsjón með frágangi eldri efnis- tökusvæða. „Vegagerðin gaf út langtímaáætlun um námufrágang fyrir árin 2004 – 2018 og gerði áætlunin ráð fyrir að ganga frá alls 900 námum á þessum árum. Í dag eru örfáar námur eftir á þessum frágangslista. Eftir að frágangi er lokið hef ég skoðað námusvæðin ásamt Birni Stefánssyni frá Umhverfisstofnun sem hefur vottað fráganginn. Mikil og skemmtileg ferðalög hafa fylgt þessari vinnu og spanna þau nánast allt landið.“ Gunnar nefnir einnig Námukerfið en það er gagnagrunnur fyrir efnisnámur landsins þar sem finna má nauðsynleg hjápartæki fyrir jarðfræðirannsóknir. „Í Námukerfið eru skráðar allar námur landsins óháð því hver er námurétthafi. Í gagnagrunninum eru nú skráðar yfir 3.300 námur. Almenningur hefur aðgang að upplýsingum um námur og um niðurstöður stein- efnaprófana á vefsíðunni namur.vegagerdin.is.“ Hlakkar til draumaferða framtíðarinnar Nú er komið að starfslokum og Gunnar hlakkar til næstu ára. „Þetta hefur liðið ótrúlega fljótt miðað við hvað þessi tímamót virtust vera óralangt í burtu þegar við Sigga tókum húsbyggingarlán til 40 ára um 1980,“ segir hann glettinn en Gunnar er giftur Sigríði Birnu Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn, Heiðrúnu kennara, Þorra Björn verkfræðing og Ástu Birnu hagfræðing. Barnabörnin eru orðin sjö á aldrinum tveggja til sextán ára. „Við Sigga vorum búin að skipuleggja drauma- ferðina okkar og ætluðum að sigla inn í sólarlagið á skemmtiferðaskipi en aðstæður buðu ekki upp á að sá draumur gæti ræst. Þess í stað stundum við gönguferð- ir grimmt til að skankarnir verði í lagi fyrir draumaferðir framtíðarinnar,“ segir hann og brosir. En hvernig er að hætta hjá Vegagerðinni eftir rúmlega hálfrar aldar starf? „Þegar horft er til baka um farinn veg verður mér hugsað til þess hversu heppinn ég var að hljóta mitt uppeldi hjá Vegagerðinni þar sem alla tíð hefur ríkt einstaklega góður og jafnvel ástúð- legur vinnuandi. Það var gott fyrir unglinginn að geta leitað á náðir móðurlegra ráðskvenna í brúarvinnunni þegar eitthvað bjátaði á og síðar var ekki síður mikil- vægt að geta leitað ráða hjá vinnufélögum sem alltaf tóku mér opnum örmum.“ Gunnar vill þakka öllum samstarfsmönnum sínum hjá Vegagerðinni ánægjulegt samstarf.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.