Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Side 10
10 Framkvæmdafréttir nr. 710
2. tbl. 29. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 710
2. tbl. 29. árg.
11
Skipulega er verið að fækka einbreiðum brúm bæði á
Hringvegi (1) og um landið allt. Árið 1990 voru einbreið-
ar brýr á Hringvegi hátt í 140 talsins. Þeim fækkaði
hratt og voru orðnar um 60 í kringum 2006 og 42 árið
2011. Síðan hægðist mjög á slíkum framkvæmdum og
aðeins voru breikkaðar eða byggðar nýjar brýr í stað 6
einbreiðra brúa á átta árum. Árið 2019 voru byggðar
sjö brýr í stað einbreiðra brúa á landinu öllu. Þetta voru
brýr í Berufjarðarbotni, yfir Hófsá í Arnarfirði, yfir Mjólká
í Arnarfirði, brú á Eldvatn og yfir Loftsstaðaá í Flóa,
einnig brú yfir Breiðdalsá og stokkur fyrir Tjarnará á
Vatnsnesi.
Einbreiðum brúm á
Hringvegi (1) fækkar
Umfjöllun um byggingu brúa yfir
Brunná, Kvíá, Fellsá og Steinavötn
↓
Kort sem sýnir framkvæmdasvæðin við
Brunná, Kvíá, Fellsá og Steinavötn.
Í lok árs 2019 voru boðnar út fjórar brýr á
Hringvegi; brú yfir Steinavötn í Suðursveit sem er 100
m löng, brú á Fellsá í Suðursveit sem er 47 metrar, brú
á Kvíá í Öræfum sem er 32 m löng og brú á Brunná
austan Kirkjubæjarklausturs sem er 24 m. Fram-
kvæmdir við þessar brýr hófust vorið 2020 og er þeim
nú lokið eða við það að ljúka. Þar með hefur einbreiðum
brúm á Hringvegi (1) fækkað í 32. Reyndar eru þær enn
33 talsins þar sem bráðabirgðabrú yfir Fellsá er enn
uppistandandi og í notkun.
Í þessari grein verður fjallað um framkvæmdirnar
við þessar fjórar brýr en Ístak sá um byggingu þeirra
allra.
SteinavötnFellsáKvíáBrunná
Núpsvötn
S
keiðará
S
kaftafellsá
Breiðamerkurlón
Jökulsárlón
Breiðamerkurjökull
Skálafellsjökull
Öræfajökull
Skeiðarárjökull Skaftafell
Síðujökull
Vatnajökull
Breiðabólsstaðarlón
Breiðárlón
Fjallsárlón
G
ígjukvísl