Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Blaðsíða 18

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Blaðsíða 18
18 Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. 19 Vegagerðin gerði kröfu um aðgengi fólks í hjólastól- um í útboði landssamgangna sumarið 2020. Krafan snerist um að slíkir vagnar væru til taks fyrir leiðir 55 (Keflavík-Reykjavík), 56 (Akureyri-Egilsstaðir) og 57 (Reykjavík-Akureyri) og sameiginlega á leið 51 (Höfn-Reykjavík) og 52 (Reykjavík-Landeyjahöfn), eða samtals fjórir vagnar. Hópbílar sem hlutu útboð fyrir akstur á Reykjanesi, Suðurlandi, Vestur- og Norðurlandi, hafa nú fengið afhentan fyrsta sérsmíðaða vagninn með hjóla- stólalyftu og hefur hann þegar verið tekinn í notkun á leið 57 frá Reykjavík til Akureyrar. SBA hlaut útboðið fyrir Norður- og Norðausturland. Þar er von á einum sérsmíðuðum bíl með hjólastólaaðgengi sem notaður verður á leiðinni milli Akureyrar og Egilsstaða. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að farþegar sem þurfa aðgengi fyrir hjólastól hafa samband við þjónustuver Strætó í síma 540-2700, með minnst 24 klst. fyrirvara til að láta vita í hvaða ferð þarf sérútbú- inn bíl. Þjónustuverið hefur samband við rekstraraðila til að tryggja að réttur bíll verði til staðar í umtalaðri ferð. Hjólastólaaðgengi á fjórum leiðum á landsbyggðinni Nýverið kom til landsins fyrsti sérsmíðaði vagninn með hjólastólalyftu sem ekur fyrir Strætó á landsbyggðinni. Vagninn er kominn í notkun á leið 57 (Reykjavík-Akureyri) hjá Hópbílum en von er á þremur vögnum til viðbótar. Bíllinn sem nú þegar er í notkun er frá Hollandi af gerðinni VDL og er eins og hinir vagnarnir sem von er á af lengstu mögulegu gerð vagna sem framleiddir eru í Evrópu. Hann er útbúinn hjólastólalyftu sem getur lyft a.m.k. 300 kg en lyftupallurinn er öruggur bæði í þurru og votu veðri. Í bílnum er beltisbúnaður og búnaður til að tryggja að stóllinn sé kyrr í vagninum. Festingar fyrir hjólastólana eru geymdar í vagnlestinni þegar stæðið er ekki í notkun. Plássið í vagninum sem er ætlað undir hjólastóla er ekki hægt að nýta undir hefðbundin vagnasæti. ↙ ↓ Einn sérsmíðaður vagn er kominn í notkun en von er á þremur til viðbótar.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.