Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Blaðsíða 16
16 Framkvæmdafréttir nr. 710
2. tbl. 29. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 710
2. tbl. 29. árg.
17
Framkvæmdir ganga vel
í Gufudalssveit
Þverun Þorskafjarðar er annar áfanginn í þeirri um-
fangsmiklu vegagerð sem framundan er með endur-
bótum Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Fyrsti
áfanginn er 6,6 km kafli milli Skálaness og Gufudalsár
í Gufufirði. Borgarverk hóf framkvæmdir við þann hluta
síðastliðið haust en áætlað er að þeim ljúki í júní á
þessu ári.
Þessi framkvæmd nýtist að fullu á meðan gamla
leiðin er farin, en aðeins fyrsti hlutinn, 1,2 km, verður
hluti af hinum nýja Vestfjarðavegi. Hinn hlutinn nýtist
sem vegabætur þar til firðirnir verða þveraðir og vegur
verður kominn í gegnum Teigsskóg en verður síðan
tenging við Gufudal.
Borgarverk hóf framkvæmdir 25. september
2020 og hefur verið unnið við fyllingar, skeringar og
ræsagerð. Efnisvinnsla er hafin á svæðinu fyrir styrkt-
arlag og burðarlag. Kalt hefur verið í veðri síðastliðnar
vikur og hefur því verktaki að mestu verið að vinna í
skeringum utan vegstæðis þar sem frostlinsa, sem nær
rúmlega 1 m niður, í núverandi vegi býður ekki upp á
frekari vinnu fyrr en slaknar á frostinu.
Verktaki hefur nú komið niður alls 22 ræsum af
31. Ljóst er að einhver aukning mun verða í fyllingum
en verktaki hefur þó lokið við stærsta hluta þeirra.
Verkið hefur gengið ágætlega og eru engar
breytingar á fyrirhuguðum verklokum sem eru 15. júlí
þó einstaka verkliðir hafi eitthvað riðlast til miðað við
upphaflega verkáætlun. Covid hefur ekki haft nein
áhrif á verkið sjálft nema þá í formi þess að flestir
verkfundir eru fjarfundir.
Næstu skref
Röðun framkvæmda í Gufudalssveit er aðeins önnur
en upphaflega var lagt upp með. Ætlunin var að byrja
hinum megin frá, á þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar
og lagningu vegar á strönd Þorskafjarðar um Teigs-
skóg. Óvissa um framkvæmdaleyfi breytti forgangs-
röðun auk þess sem unnið hefur verið að samningum
við landeigendur. Nýverið náðist samningur við land-
eigendur í Hallsteinsnesi en ennþá er ósamið við einn
aðila.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála
staðfesti í október á síðasta ári framkvæmdaleyfi fyrir
lagningu Vestfjarðavegar eftir svokallaðri Þ-H leið, sem
liggur um Teigsskóg og þverar Þorskafjörð, Gufufjörð
og Djúpafjörð. Ekki er ljóst hvenær verður hægt að
bjóða út þann kafla sem eftir stendur en vonir standa
til að útboð verði á Djúpadalsleið og þverun Gufufjarð-
ar og Djúpafjarðar á þessu ári.
↓
Framkvæmdir í Gufufirði.