Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Page 18
18 Framkvæmdafréttir nr. 710
2. tbl. 29. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 710
2. tbl. 29. árg.
19
Vegagerðin gerði kröfu um aðgengi fólks í hjólastól-
um í útboði landssamgangna sumarið 2020. Krafan
snerist um að slíkir vagnar væru til taks fyrir leiðir
55 (Keflavík-Reykjavík), 56 (Akureyri-Egilsstaðir) og
57 (Reykjavík-Akureyri) og sameiginlega á leið 51
(Höfn-Reykjavík) og 52 (Reykjavík-Landeyjahöfn), eða
samtals fjórir vagnar.
Hópbílar sem hlutu útboð fyrir akstur á
Reykjanesi, Suðurlandi, Vestur- og Norðurlandi, hafa nú
fengið afhentan fyrsta sérsmíðaða vagninn með hjóla-
stólalyftu og hefur hann þegar verið tekinn í notkun á
leið 57 frá Reykjavík til Akureyrar. SBA hlaut útboðið
fyrir Norður- og Norðausturland. Þar er von á einum
sérsmíðuðum bíl með hjólastólaaðgengi sem notaður
verður á leiðinni milli Akureyrar og Egilsstaða.
Fyrirkomulagið er með þeim hætti að farþegar
sem þurfa aðgengi fyrir hjólastól hafa samband við
þjónustuver Strætó í síma 540-2700, með minnst 24
klst. fyrirvara til að láta vita í hvaða ferð þarf sérútbú-
inn bíl. Þjónustuverið hefur samband við rekstraraðila
til að tryggja að réttur bíll verði til staðar í umtalaðri
ferð.
Hjólastólaaðgengi á fjórum
leiðum á landsbyggðinni
Nýverið kom til landsins fyrsti sérsmíðaði
vagninn með hjólastólalyftu sem ekur fyrir
Strætó á landsbyggðinni. Vagninn er kominn í
notkun á leið 57 (Reykjavík-Akureyri) hjá
Hópbílum en von er á þremur vögnum til viðbótar.
Bíllinn sem nú þegar er í notkun er frá Hollandi af
gerðinni VDL og er eins og hinir vagnarnir sem von er á
af lengstu mögulegu gerð vagna sem framleiddir eru í
Evrópu. Hann er útbúinn hjólastólalyftu sem getur lyft
a.m.k. 300 kg en lyftupallurinn er öruggur bæði í þurru
og votu veðri.
Í bílnum er beltisbúnaður og búnaður til að
tryggja að stóllinn sé kyrr í vagninum. Festingar fyrir
hjólastólana eru geymdar í vagnlestinni þegar stæðið
er ekki í notkun. Plássið í vagninum sem er ætlað
undir hjólastóla er ekki hægt að nýta undir hefðbundin
vagnasæti.
↙ ↓
Einn sérsmíðaður vagn er kominn í notkun
en von er á þremur til viðbótar.