Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Page 10

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.03.2021, Page 10
10 Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 710 2. tbl. 29. árg. 11 Skipulega er verið að fækka einbreiðum brúm bæði á Hringvegi (1) og um landið allt. Árið 1990 voru einbreið- ar brýr á Hringvegi hátt í 140 talsins. Þeim fækkaði hratt og voru orðnar um 60 í kringum 2006 og 42 árið 2011. Síðan hægðist mjög á slíkum framkvæmdum og aðeins voru breikkaðar eða byggðar nýjar brýr í stað 6 einbreiðra brúa á átta árum. Árið 2019 voru byggðar sjö brýr í stað einbreiðra brúa á landinu öllu. Þetta voru brýr í Berufjarðarbotni, yfir Hófsá í Arnarfirði, yfir Mjólká í Arnarfirði, brú á Eldvatn og yfir Loftsstaðaá í Flóa, einnig brú yfir Breiðdalsá og stokkur fyrir Tjarnará á Vatnsnesi. Einbreiðum brúm á Hringvegi (1) fækkar Umfjöllun um byggingu brúa yfir Brunná, Kvíá, Fellsá og Steinavötn ↓ Kort sem sýnir framkvæmdasvæðin við Brunná, Kvíá, Fellsá og Steinavötn. Í lok árs 2019 voru boðnar út fjórar brýr á Hringvegi; brú yfir Steinavötn í Suðursveit sem er 100 m löng, brú á Fellsá í Suðursveit sem er 47 metrar, brú á Kvíá í Öræfum sem er 32 m löng og brú á Brunná austan Kirkjubæjarklausturs sem er 24 m. Fram- kvæmdir við þessar brýr hófust vorið 2020 og er þeim nú lokið eða við það að ljúka. Þar með hefur einbreiðum brúm á Hringvegi (1) fækkað í 32. Reyndar eru þær enn 33 talsins þar sem bráðabirgðabrú yfir Fellsá er enn uppistandandi og í notkun. Í þessari grein verður fjallað um framkvæmdirnar við þessar fjórar brýr en Ístak sá um byggingu þeirra allra. SteinavötnFellsáKvíáBrunná Núpsvötn S keiðará S kaftafellsá Breiðamerkurlón Jökulsárlón Breiðamerkurjökull Skálafellsjökull Öræfajökull Skeiðarárjökull Skaftafell Síðujökull Vatnajökull Breiðabólsstaðarlón Breiðárlón Fjallsárlón G ígjukvísl

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.