Ský - 01.06.1997, Síða 23

Ský - 01.06.1997, Síða 23
Rax Masauna Kristiansen frá Qaanaaq á Thule. „Stórkostlegur karl sem heyrði þegar hvalirnir voru að koma," segir Rax. inni. Það voru kannski allir að drekka te í rólegheitunum þegar hann reis allt í einu upp og benti eitthvað út í loftið. Og eftir smástund sá maður glitta í ís- björn lengst í burtu. En það er lítið sældarlíf hjá þessum mönnum, stund- um svelta þeir heilu dagana ef þeir veiða ekkert. Aðra daga þurfa þeir að húka við einhverja vök í fjörutíu stiga frosti og bíða eftir að selur skjóti upp hausnum svo þeir geti gefið hundun- um að éta. En þrátt fyrir þessi erfiðu lífsskilyrði segjast þeir hvergi annars staðar vilja vera. Hvernig er daglega lífið í þorpun- um? Þorpin eru auðvitað misjafnlega nú- tímaleg. Til dæmis er Nuuk ekkert ósvipaður bær og Hafnarfjörður og líf- ið ekki mikið frábrugðið því sem ger- ist á íslandi. En svo eru aftur þorp eins og Thule sem er ekta veiðimannasam- félag. Þar býr fólk í litlum kofum og dagurinn fer í að veiða ofan í sig hval og sel. Kvöldunum er svo svo eytt við spilamennsku. Þetta er fullrólegt líf fyrir minn smekk. í síðustu ferð var ég í þorpi í viku þar sem ekkert var við að vera svo ég var búinn að lesa sömu bókina fimmtíu sinnum og flugfarseð- ilinn enn oftar. En daglega lífið í þess- um litlu veiðimannasamfélögum er byrjað að breytast. Sum heimilin eru til dæmis komin með gervihnattadiska og þar er kvöldunum eytt í sjónvarps- gláp. Og ferðamannaiðnaðurinn hefur breytt ýmsu. Ég rekst til dæmis æ oftar á veiðimenn sem eru farnir að vinna við að fylgja ferðamönnum. Grænlensk menning að hverfa bak við gervihnattadiska Er ferðamannastraumurinn til Grœnlands að aukast? Já, hann hefur aukist töluvert. En það kemur mér alltaf á óvart hvað fólk í ferðamannabransanum virðist vita lít- ið um Grænland. Landið er svo miklu stærra og fjölbreyttara en bara Kulusuk. Langflottasta svæðið sem ég hef komið á er Thule-svæðið. Það er alvöru Grænland. En þá verður maður líka að fara með veiðimönnunum í ferðir en ekki vera bara í þorpunum. Það er ekki fyrr en í veiðiferðunum sem maður virkilega kynnist Græn- lendingunum og sér hvað þetta er sér- stakt og flott líf. Það eru samt fáir er- lendir ljósmyndarar sem fara til Grænlands. Þeir virðast hafa meiri á- huga á að vera á sundskýlunni í heitu löndunum en að hætta sér í kuldann. Og því er tilvalið fyrir okkur ljós- myndarana hérna heima að fara til Grænlands og gera öðruvísi hluti en allir hinir. Hvernig sýnist þér að þróun byggð- ar og lifnaðarhátta eigi eftir að vera í landinu? Ég hef áhyggjur af að þessi ekta grænlenska veiðimannahefð hverfi á komandi árum. Umhverfisverndar- samtök fóru illa með þá á sínum tíma og viðurkenndu það seinna. Til dæmis fylgdust Grænlendingar mjög náið með því hvemig mál Greenpeace gegn Magnúsi Guðmundssyni myndi fara og óttuðust að þeir yrðu búnir að vera eftir það mál og gætu ekki lengur stundað veiðar. Enda geta Grænlend- ingar illa varið sig gegn áróðursmask- ínu umhverfisvemdarsinna. Ég sé líka á krökkunum að þeim finnst mun þægilegra að vera heima og horfa á vídeó heldur en elta sel í skítakulda. Sum þekking er líka að tapast, til dæmis eru margir komnir á plastkajaka og klæddir í danska galla í staðinn fyr- ir skinnfötin. Það eru líka færri og færri sem kunna grænlenska trommu- dansinn. Það er bara ekki það sama að horfa á veiðimann í Hummelgalla á plastkajak og að horfa á mann í skinn- fatnaði á flottum segldúkskajak. Byggð er líka að leggjast af á sum- um svæðum. Fyrir stuttu var ég að mynda í litlu þorpi upp við Scores- bysund en heyrði svo í síðustu ferð að þar væri ekki búið lengur nema á sumrin. Þannig að það verður ekki hægt að mynda Grænland eftir nokkur ár eins og það er í dag. Og þess vegna er ég að 21

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.