Ský - 01.06.1997, Page 28

Ský - 01.06.1997, Page 28
Flugfélag Íslands „Auðvitað er markmiðið að reka þetta sem fyrirtæki sem skilar hagnaði. Frá því að innanlandsflugið var skilið frá öðrum rekstrarþáttum Flugleiða fyrir rúmlega einu og hálfu ári og gert að sjálfstæðri rekstrareiningu, hefur náðst verulegur árangur í að bæta af- komuna. Með þessari sameiningu erum við líka að ná fram hagræðingu að því leyti að með blönduðum flota Pieper Chieftain. Að sögn Páls gerir þessi samsetning flotans Flugfélaginu kleift að láta til sína taka á leiguflugs- markaðinum. „Með þann Fokkerflota sem Innan- landsflug Flugleiða hefur verið með, þrjár vélar yfir vetrarmánuðina og fjór- ar yfir sumarið, hafa vélarnar verið nánast algjörlega uppteknar í áætlunar- fluginu. Með þessari viðbót skapast sá „Ég get trúað því að síðustu fjögur árin hafi okkur tekist að fjölga farþeg- um um 15 prósent, frá um það bil 250.000 farþegum á ári í 280.000 árið 1996, en það var metár í sögu innan- landsflugsins," segir hann og bendir á að inn í þeirri tölu séu eingöngu arð- bærir farþegar, en ekki þeir sem borga undir 75 prósent fargjald, sem eru til dæmis smáböm. Vægi innanlandsflugs í samgöngukerfinu Innanlandsflug er burðarás í samgöngukerfi íslands eins og sést augljóslega á þeirri staðreynd að á síðasta ári hófu vélar sig á loft í innanlandsflugi með samtals tæplega sjö hundruð og fimmtíu þúsund farþega. í erindi sem Þorgeir Pálsson flugmálastjóri hélt á flugþingi haustið 1995 kom fram það mat hans að hlutverk flugsam- gangna hérlendis sé fyrst og fremst að tengja saman lands- byggðina og höfuðborgarsvæðið og flytja fólk og forgangs- varning á þessum leiðum. Þessu til stuðnings benti Þorgeir á að hátt í 90 prósent flugfarþega fara um Reykjavíkurflugvöll. í erindi sínu komst flugmálastjóri að þeirri niðurstöðu að með samanburði á land- og loftflutningum sé hægt að draga eftirfarandi meginályktanir: Ef aksturstíminn er innan við þrjár klukkustundir, þá hafa landflutningar yfirburði sem flug- ið getur ekki keppt við. Ef aksturstíminn er á bilinu þrjár til sex klukkustundir er um harða samkeppni að ræða milli loft- og landflutninga þar sem tíðni flugferðanna getur ráðið úrslitum. Og að lokum, ef aksturstíminn fer yfir sex tíma hefur flugið að mörgu leyti yfirburðastöðu, til dæmis hvað snertir ferðatíma og kostnað. getum við þjónað „magrari“ leiðum með meiri tíðni á minni vélum en við gátum áður með Fokker-vélunum, og svo aftur á móti nýtt þær betur á stærri leiðunum.“ Floti Flugfélagsins samanstendur af fjórum fimmtíu sæta Fokker 50, þrem- ur nítján sæta Metro, en þar af em tvær spánnýjar vélar sem hafa verið leigðar frá Bandaríkjunum, tveimur nítján sæta Twin Otter og einni níu sæta möguleiki að sinna leiguflugi og við ætlum okkur að vera mjög áberandi á þeim markaði. Þetta er þáttur sem Flugfélag Norðurlands þekkir sérlega vel og kemur með inn í reksturinn, en stór hluti tekna þess var af leiguflugi." Fyrstu ár tíunda áratugarins mátti greina nokkra stöðnun í farþegaflutn- ingi innanlands. Að sögn Páls hafa undanfarin ár hins vegar verið góð og farþegum fjölgað töluvert. Að sögn Páls á þessi þróun þó ekki við um allar flugleiðir, heldur fyrst og fremt um flug til stærri áfangastaðanna og vegur leiðin milli Akureyrar og Reykjavíkur sérstaklega þungt í þessu sambandi. Samkeppnin framundan Aðspurður um hvemig samkeppnin leggist í hann, segist Páll fagna henni og vera fullviss um að hún muni efla Búningar flugliða FÍ eru hannaðir af Maríu Ólafsdóttur. 26

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.