Ský - 01.06.1997, Page 50

Ský - 01.06.1997, Page 50
Útivist skóm fæst meiri festa þar sem þeir svigna ekki og því er öruggara að klifra í þeim en skóm sem gefa meira eftir. Þá eru einnig minni líkur á því að togna í stífum skóm þar sem þeir halda mun betur við fætuma en mýkri kloss- ar. Þannig eru til dæmis jöklaskór af svipaðri gerð og skíðaklossar. Ef ætl- unin er að halda sig við göngur í fjall- lendi og klettóttu landslagi er mælt með skóm af miðlungsstyrkleika og eru þeir hæfilegir fyrir byrjendur. Þá er hægt að fá skó sem eru sérhannaðir fyrir léttar göngur og eru þeir ekki ó- svipaðir styrktum strigaskóm. Sauma- fjöldi er mikilvægt atriði vegna þess að með tímanum fara skór að leka gegn- um saumana, því færri saumar þeim mun betra. Forðist sérstaklega skó með saumum eftir þeim endilöngum og yfir tána. Eftir nokkra mánuði hleypa þeir gegnum sig öllu því vatni sem inn vill komast. Annað mikilvægt atriði er að skórnir séu ekki glænýir þegar lagt er af stað í langa göngu. Gönguskó verður að ganga til og það er alveg bannað að kaupa þá daginn áður en hetja skal för. Upp úr því hefst ekkert nema blöðrur og kvalir með til- heyrandi erfiðleikum. Bakpokar fyrir lítla og stóra Ef lagt er í tveggja daga ferð verður bakpokinn að vera þannig úr garði gerður að göngumanni líði vel með hann. Pokamir sem nú eru á markaðn- um eru með stillanlegu baki þannig að hægt er að laga þá að hæð og vexti hvers og eins. Ef keyptir eru góðir, sterkbyggðir bakpokar frá viðurkennd- um framleiðendum eiga þeir að endast von úr viti. Pokamir em náttúrlega til í öllum stærðum og eru mældir í lítrum. Fyrir tveggja daga göngu þarf poka sem rúmar um 50-60 lítra, eigi allt að komast fyrir. Þyngdin á bakpokanum og því sem í hann er sett er miðpunkturinn í öllu skipulagi þegar pakkað er niður fyrir ferðina. Misjafnt er hversu miklar birgðir menn ráða við. Flestir ættu að setja markið einhvers staðar á bilinu 15 til 25 kíló, en ekki má gleyma því að „hæfilega léttur bakpoki" er léttasta byrðin sem þið getið komist af með. Viggó Örn Jónsson er lausapenni og borgarbarn sem fer ekki í óbyggðir nema peningar séu í boði. Tíu ómissandi hlutir í bakpokann Landakort (kort Landmætinga eða gönguleiðakort ef slík eru fáanleg). Áttaviti (nauðsynlegt tæki sem kunna þarf að nota). Eldspýtur. Léttir strigaskór (til að þurfa hvorki að fórna þurrum gönguskónum né skera berar iljarnar á grjóti í farveginum þegar vaðið er yfir ár og læki). Sólgleraugu (ef gengið er í snjó er endurkastið gríðarlega sterkt og snjóblinda er óskemmtileg reynsla). Sólaráburður (háfjallasólin er sterk og það þarf sterkan áburð til að brenna ekki á fjöllum). Sjúkrakassi. Vasahnífur. Göngustafir (létta gönguna mikið og hægt er að fá stafi sem eru af stillanlegri lengd þannig að hægt er að stinga þeim ofan í bakpokann þegar þeir eru ekki í notkun). Myndavél. Til öryggis Skiljið eftir ferðaáætlun hjá Lands- björg með upplýsingum um hvenær á að leggja af stað, hvert á að fara, hversu margir eru í för og hvenær á að koma til baka, þannig að skili göngu- menn sér ekki á réttum tíma verði far- ið að leita að þeim og það á réttum stöðum. Að lokum er svo æskilegt að hafa með sér ferðafélaga. Það þarf svo afskaplega lítið að fara úrskeiðis til að menn slasi sig á fjöllum og þá er gott að hafa félaga með í för. 48

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.