Ský - 01.02.1998, Page 31
/
Ihefðbundnum skilningi þess orðs
eru íslendingar friðsöm þjóð. Hér
er enginn her og hefur ekki verið
í mörg hundruð ár, vopnaburður
er óþekkt íþrótt og íslendingum er
tamara að vegast með orðum en spjót-
um og sverðum.
í öðrum löndum þekkjum við heri
sem skiptast í sjó-, land- og loftheri.
Innan þessara herja eru þekkt fyrirbæri
sem kallast sérsveitir sem er yfirleitt
harður, lítill kjami þrautþjálfaðra jaxla
sem eru falin erfiðari verkefni en
venjulegum fótgönguliðum. Hinar
ýmsu sérsveitir hafa mismunandi gott
orð á sér eins og verða vill í slíku starfi
og nægir að nefna Grænu alpahúfumar
(Green Berets) í ameríska hemum sem
eru taldir miklir vígamenn meðan
SAS-sveitir breska flughersins og selir
ameríska sjóhersins (Navy Seals) hafa
á sér jákvæðari hetjuljóma.
A íslandi er til hliðstæða alls sem
finnst í heiminum og hér er engin und-
antekning á. Beinasta samlíkingin við
erlendu sérsveitirnar er auðvitað sér-
sveit lögreglunnar í Reykjavík. ís-
lenska hliðstæðan við hermennsku al-
mennt eru björgunarsveitir, en íslensku
björgunarsveitimar eiga sér varla hlið-
t heiminum. Það finnst ekki í
vestrænum heimi dæmi um að löggjaf-
inn, sem ber samkvæmt lögum að
tryggja öryggi borgaranna, styðjist
helst við sveitir þjálfaðra áhugamanna
og væri hið opinbera ráðalaust við leit
og björgun ef þessara sveita nyti ekki
við.
Starf björgunarsveitanna íslensku er
sveipað talsverðum hetjuljóma með
réttu því á undanförnum árum hafa
sveitirnar verið í sviðsljósinu með því
að vinna mikil björgunarafrek við
mjög erfiðar aðstæður. Nægir að nefna
staðarheitin Súðavík og Flateyri til
þess að allir skilji hvað átt er við. Þar
unnu björgunarsveitir mikil afrek við
afar erfiðar aðstæður.
Þjóðin er björgunarsveitunum
þakklát og metur starf þeirra á margan
hátt að verðleikum og styrkir sveitimar
með ráðum og dáð. Hitt er svo annað
mál að í nútímanum verður sífellt erf-
iðara að halda úti öflugu starfi sem
byggir á sjálfboðaliðavinnu þegar allur
búnaður, tæki og rekstur kostar mikla
peninga. Það er hins vegar mál sem
verður ekki farið út í hér.
Björgunarsveitirnar eru sem slíkar
að verða 80 ára gamlar. Fyrsta eigin-
Úrvalssveitir
jorgunar-
sveitanna