Ský - 01.02.2001, Qupperneq 12
FYRST & FREMST
MEÐ NÁTTHRÖFNUM í KÓPAVOGI
Þaö er spurning hvort opnun erótíska
næturklúbbsins Goldfingers við Smiðjustíg
í Kópavogi sé vísir aö rauðu hverfi á
höfuðborgarsvæðinu. Vera súlustaðanna
t miðborginni er þyrnir í augum margra og
það hefur ekki beinlínis þótt til fyrirmyndar
þegar gestir sumra þessara staða eru að
staulast út um svipað leyti og íbúar mið-
bæjarins eru að fara á fætur og verslunar-
fólk er aö mæta til vinnu sinnar, jafnvel
í miðri viku. Goldfinger leysir þetta vanda-
mál að hluta til, að minnsta kosti hvað
Ljósm: Páll Stefánsson
snertir virku dagana, þvt staðurinn er
opinn frá 22-6 alla daga vikunnar og er
í miðju smáiðnaðarhverfi þar sem er engin
íbúabyggð. Eigandinn, Ásgeir Davíðsson,
sem jafnframt á Maxim, segir að yfirleitt
fari ekki að hitna í kolunum t Kópavoginum
fyrr en eftir að miðbæjarbarirnir loka. Þá
fyllist Goldfinger af fólki sem er ekkert
endilega í leit að beru holdi heldur opnum
bar og öðru fólki sem vill ekki fara aö
sofa. JK
BLAÐ SKILUR BAKKA OG EGG
Fáir eldhúshntfar þykja taka hinum japönsku Global-hnífum fram. Þessir hnífar
eru margverðlaunaðir fyrir hönnun og gæði og eru jafnt brúkaðir af fagmönnum
sem áhugamönnum við matreiðslu. Handfang og blað er gert úr hertu stáli,
en hægt er að velja á milli um fimmttu gerða fyrir ólíkar aðgerðir. Einhverjir muna kannski eftir Global-hntfunum
úr myndinni American Psycho, en enginn þeirra var þó hannaður til þeirra verka sem fagurkerinn Patrick Bateman,
söguhetja myndarinnar, kaus að nota þá þar. Hér á landi fást Global-hnífar t versluninni Epal í Skeifunni. JK
Traffic Efnið er strtðið endalausa um útrýmingu eiturlyfja. I forgrunni
er frásögn af íhaldssömum dómara sem er skipaður yfirmaður
baráttu Bandarikjanna gegn dópinu, en kemst svo að því að tánings-
dóttir hans er krakkfíkill. En myndin segir margar sögur sem sumar
skarast, aðrar ekki, og sögusviðið er allt frá Tijuana til Washington
með viðkomu í virðulegu úthverfi 1 Ohio og mextkóskri eyðimörk svo
einhverjir staðir séu nefndir.
Leikarar: Michael Douglas, Benicio Del Toro,
Dennis Quaid og Catherine Zeta-Jones.
Leikstjóri: Steven Soderbergh, sem hefur
meðal annars gert Erin Brockovitch, Out of
Sight, og Sex Lies and Videotape. Orösporið:
Einhver magnaðasta mynd sem hefur komið
frá Hollywood t seinni ttð.
Hannibal Tekur upp
þráðinn þar sem Silence
of the Lambs endaði.
Eftir að Hannibal Lecter
slapp af hælinu t
Baltimore hefur honum tekist að leynast t Flórens á
Italtu og átt þar náðuga daga; vinnur á listasafni og
hefur að mestu vanið sig af mannátinu. Sérstakar
aðstæður verða til þess að hann þarf að snúa aftur
til Bandarikjanna þar sem biða hans FBI-fulltrúinn
Clarence Sterling, vinkonan úr fyrri myndinni og ill-
vígur fyrrverandi sjúklingur og fórnarlamb læknisins.
Og er sá meira illmenni en Hannibal ef eitthvað er.
Leikarar: Anthony Hopkins, Julianne Moore, Gian-
carlo Giannini og Gary Oldman. Leikstjóri: Ridley
Scott sem á stórvirki á borö við Gladiator, Thelma
& Louise, Blade Runner og Alien aö baki. Orösporiö:
Blóðugri og svakalegri en forverinn. Jodie Foster
treysti sér ekki til aö taka aftur að sér hlutverk Cl-
arence Sterlings eftir að hafa lesið handritið.
Almost Famous Gerist í kringum 1973. Fimmtán ára strákur fær
tækifæri á að feröast með rokkhljómsveit til að skrifa grein um hana
fyrir Rolling Stone. Hann verður ástfanginn af einni grúpptunni og fær
að kynnast öllum hliðum hljómsveitalífstílsins, kynltfi, dópi og rokki
og róli.
Leikarar: Billy Crudup, Frances McDormand, Kate Hudson og Jason
Lee. Leikstjóri: Cameron Crowe, hefur m.a. leikstýrt og skrifað Jerry
Maguire og Singles. Orösporiö: Lauslega byggð á eigin lifsreynslu
leikstjórans. Þykir afar vel heppnuð, skemmtileg og vel leikin. Kate
Hudson fékk Golden Globe - verðlaunin fyrir leik í aukahlutverki.
Chocolat Dag einn birtist kona ásamt dóttur sinni t frönskum smá-
bæ og opnar súkkulaðiverslun. Konfektið hennar færir Ibúunum ást
og hamingju en siðsamur bæjarstjórinn og handbendi hans sóknar-
presturinn eru ekki alls kostar sáttir við starfsemina.
Leikarar: Juliette Binoche, Lena Olin, Johnny Depp, Judi Dench,
Alfred Molina. Leikstjóri: Lasse Hallström, sem hefur meðal annars
gert What's Eating Gilbert Grape og Mitt liv som hund. Orösporiö:
Ljúf og notaleg listræn mynd t anda töfraraunsæis, sem jafnvel þeir
sem ekki þola listrænar myndir hafa gaman af.