Ský - 01.02.2001, Blaðsíða 42
Ágúst Pétursson
stundar höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, mjúka og nærfærnislega meðferð á líkamanum,
sem stundum getur orðið tilfinningalegs eða andlegs eðlis.
Hvernig vinnurðu?
„Það sem ég geri líkist að sumu leyti nuddi
en er afskapleg nærfærin vinna og hvergi
ágeng. Meðferðin hentar öllum aldurshóp-
um, allt frá smábörnum til aldraðra. Það er
erfitt að útskýra hvers vegna, en það er í
rauninni mýktin í vinnunni sem auðveldar
mér að ná til og losa um spennu djúpt í l!k-
amanum. Vegna þess að meðferðin beinist
að hrygg og höfuðbeinum - því sem umlykur
stjórnstöð líkamans - er hægt að vinna á
mörgum og að því er virðist óskyldum kvill-
um, enda virðast þeir vera afleiðing þrýst-
ings eða spennu í höfuðbeinum, neðra
baki eða spjaldhrygg. Hér á ég við kvilla
eins og streitu, langvarandi höfuðverk, jafn-
vel mígreni, og sumar tegundir síþreytu, en
einnig lesblindu og ofvirkni! börnum auk
margra ungbarnakvilla. Auk þess virkar
meðferðin auðvitað vel á alla vöðva- og
bakverki. Hún hefurtil dæmis reynst einkar
vel gegn brjósklosi og það er oft hægt að
merkja verulegan árangur eftir einungis tvö
eða þrjú skipti. Einnig hefur meðferðin
dugað vel gegn svipuólaráverkum (ákveðin
tegund hálsmeiðsla) ogjafnvel grindar-
gliðnun. Eins og áður sagði er meðferðin
fólgin snertingu, en mjög varfærnislegri.
Þess vegna virðast nær allir geta slakað
á og losað um spennu og þannig þróast
þetta oft út! hreina tilfinningalosun. Með-
ferðin getur hentað þeim sem þjást af
þunglyndi og einnig fólki sem orðið hefur
fyrir alls konar líkamlegum og tilfinninga-
legum áföllum, svo hverskyns slysum og
ofbeldi en einnig missi eða skilnaði."
40 SKÝ )URREISN HOLDS OG
J