Ský - 01.02.2001, Page 86
Undraveröld
Sundlaug Akureyrar
Laust fyrir klukkan sjö á morgnana stendur þéttur hópur fasta-
gesta og bíður þess í ofvæni að starfsmenn Sundlaugar Akureyr-
ar snúi lyklinum í skránni og opni þeirm aðgang að vatnsparadis
Norðlendinga. Þegar gestirnir hafa skellt sér i skýlurnar og kom-
ið sér fyrir í heitu pottunum hefjast fjörugar umræður um lands-
málapólitíkina og bæjarmálin.
„Hér koma saman miklir spekingar," segir Gísli Kristinn Lórenz-
son, forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar. „Einn starfsmann-
anna byggir veðurspá sína á fuglunum og gefur út nýja veður-
spá á hverjum laugardegi, en við sem þiggjum spána erum
samt miklu spenntari fyrir eldgosi því samkvæmt okkar kokka-
bókum má lesa komandi eldsumbrot í veðurfarinu."
I nýju fagurblárri 25 metra lauginni svamla gestir í upphituðu
vatni. „Já, það myndast miklu minni kísill og útfelling ef vatnið
er upphitað," upplýsir Gísli. „Heitavatnskostnaðurinn er um tutt-
ugu milljónir á ári en það er þrisvar sinnum meira en kostnaður
Reykvíkinga við sambærilega laug."
í fyrra sóttu 330.000 manns sundlaugarnar á Akureyri heim.
„Sundið er sígilt og ár frá ári eykst fjöidi þeirra sem stundar
sund. Vitamínsprautur fyrir sundlaugarnar á Akureyri eru m.a.
Apdrésar Andarleikarnir, Esso-mót KA og Poilamót Þórs, þá
fyllist hér allt af fjöri," segir Gísli brosandi.
Sundlaug Akureyrar hefur fengið mikla andlitslyftingu á undan-
förnum árum. Búið er að byggja nýtt þjónustuhús og myndar-
lega 25 metra sundlaug. Þeir sem ekki vilja troða marvaðann
geta farið í Ijós, 48°C heita gufu, heitu pottana eða hinar
æsispennandi rennibrautir. Sundlaug Akureyrar er sannkölluð
undraveröld fyrir börn. Meðan fullorðna fólkið flatmagar á sund-
laugarbakkanum getur ungviðið gleymt sér í hoppkastala, ról-
um, trampóllni, sandkössum og bílabrautum meö umferðarljós-
um og rafmagnstrukkum. „Ég er afskaplega stoltur af lauginni
okkar," segir Gísli að lokum. „Hér reynum við að hafa þjónust-
una framúrskarandi, aðstöðuna alltaf tandurhreina og sundlaug-
arstæðið er einstakt."
Sundlaug Akureyrar, Þingvallastræti 21, s. 461 4455, opnunartími: virka
daga frá 7-21 og um helgar frá 8-18.30. Netfang: sund@nett.is
Punkturinn
I himinháum sölum fyrir ofan
Listasafnið á Akureyri
blómstrar listagyðja almúgans
í handverks- og tómstunda-
miöstöðinni Punktinum.
Kristbjörg Magnadóttir for-
stöðumaður segir Punktinn
opinn upp á gátt fyrir alla
íslendinga, en einnig erlenda
ferðamenn. „Hingað koma
allir í þjóðfélagsstiganum,
burtséð frá efnahag eða
stöðuheiti," segir Kristbjörg.
Þegar gengið er um sali
Punktsins má sjá fólk á
öllum aldri bardúsa við iðju
stna. Tveggja ára mömmur
spóka sig stoltar með forna
barnavagna og gamlir karlar
pússa lampa og saga borð.
Unglingar púsla saman
mósaíkvösum og konur á
öllum aldri sníða, sauma,
bræða gler eða hnoða leir
innan um vefstóla ogjárn-
smíðahögg. Kristbjörg segir
sjötíu manns heimsækja
Punktinn dag hvern. „Við erum
með eitt til tvö ný námskeið
á ári og verðum næst með
námskeið í brauðmótum."
I Punktinum er enginn efni-
viður keyptur heldur allt
endurunnið og stefnt að þvt
að nýta náttúruna og skila
henni betri.
Barnapössun er á staðnum,
kaffisjóður og allt efni selt
út.
„Það býr listamaður í hverj-
um einasta manni," fullyrðir
Kristbjörg, „en oft er dapur-
legt að sjá hvernig þjóðarsál-
in endurspeglast í minnimátt-
arkennd margra þvt sköpun
var oft barin niður í fólki af
þvt aö allir áttu að vera eins.
Hins vegar hafa allir þörf til
að skapa, auk þess sem það
er róandi og hollt."
Punkturinn, Dalsbraut 1,
s. 462 2711, púnkturinn@nett.is
Brattur Hannes
Starf Listasafnsins á
Akureyri hefur einkennst af
fítonskrafti t gjörgæslu Hann-
esar Sigurðssonar forstöðu-
manns. Það hvílir engin dreif-
býlis-vanmáttarkennd yfir
starfsemi safnsins og hefur
Hannes verið óbanginn viö
að leita til fremstu lista-
manna íslands og veraldar til
auka hróður þess. í ár verða
ellefu sýningar hjá Listasafn-
inu og má til helstu tíðinda
nefna sýningu franska Ijós-
myndarans Henris Cartier-
Bresson, danska iistamanns-
ins Pers Kirkeby og sýning-
una „Frumherjar I byrjun 20.
aldar" sem er yfirlitssýning
tslensku meistaranna. I febr-
úar og mars er norska far-
andssýningin Detox t rými
safnsins en að henni lokinni
sýna Kristinn G. Jóhannsson
og Jónas Viðar þar verk stn.
„Akureyri er ekki lengur
hreinn iðnaðarbær, heldur
fyrst og fremst menningar- og
skólabær," segir Hannes.
„Listasafnið á Akureyri er
mikilvægur liöur t þessari þró-
un og minnir á að hér er
margt í boði, ekki stður en á
höfuðborgarsvæðinu. Til að
festa þá tmynd frekar t sessi
þarf safnið að starfa á sömu
forsendum og önnur listasöfn
í samkeppni um athyglina.
Möguleikarnir hérna eru grtð-
arlega miklir, ég tala ekki um
ef bærinn ber gæfu til að
stækka safnið og taka efstu
hæð hússins í notkun, eins
og lengi hefur staðið til. Þeg-
ar það gerist mun Listasafnið
á Akureyri eignast einn glæsi-
legasta sýningarsal landsins
og þótt víðar væri leitað."
Listasafnið á Akureyri,
Kaupvangsstræti 12,
s. 461 2610, opið þriðjudaga -
sunnudaga kl. 13-18
84 SKÝ HETJUR NORÐURSINS