Kraftur - 2023, Blaðsíða 8

Kraftur - 2023, Blaðsíða 8
B ls .8 Kraftur Kolluna upp fyrir …. Um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju með krabbamein og hefur það vissulega áhrif á bæði þá sem greinast sem og fjölskyldur þeirra og aðra ástvini. Kraftur er til staðar fyrir þá. Fólk var hvatt til að setja upp kolluna þ.e. húfuna fyrir einhvern ákveðinn eða hreinlega fyrir Kraft. „Heitið - Fyrir hvern setur þú upp kolluna vísaði til þess að oft á tíðum missir fólk hárið í krabbameinsmeðferð og sumir velja að setja upp hárkollu. Við hvöttum fólk til að sýna samstöðu með því að setja upp „Lífið er núna“ kolluna sem er líka annað heiti yfir húfu og vekja þannig athygli á málefnum ungs fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda,“ sagði Þórunn Hilda Jónasdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Krafts. Vöktum athygli víðsvegar Átakið hófst svo sannarlega af krafti þar sem Sóli Hólm mætti í Gísla Martein og kynnti til leiks „Lífið er núna“ húfuna og árvekniátakið. Fjölmiðlar tóku vel við sér og birtu auglýsingar víðsvegar og viðtöl voru tekin við þá sem deildu sinni reynslu í átakinu. Auglýsingar voru birtar í sjónvarpi, kvikmyndahúsum, útvarpi, tímaritum, blöðum, vefsíðum, strætóskýlum, auglýsingaskiltum og að sjálfsögðu á hinum ýmsu samfélgasmiðlum. Svo sannarlega má segja að Kraftur hafi látið appelsínugula ljós sitt skína í janúar og febrúar en það voru í kringum 60.000 snertingar bæði á Facebook og Instagram, um 23.000 heimsóttu vefina www.kraftur.org og www.lifidernuna.is. Kraftur lét til sín taka á Tiktok og talið að rúmlega 600.000 vegfarendur hafi séð umhverfisauglýsingarnar svo eitthvað sé nefnt. Appelsínugulir og svartir kollar um land allt Húfurnar voru til sölu í vefverslun Krafts sem og í helstu Krónuverslunum, Hagkaupum, Karakter og Company’s. Auk þess tóku starfsmenn Krafts sig til og voru með kynningar á Krafti og sölu á húfunum í Smáralind og Kringlunni einn laugardag á tímabilinu. Yfir sex þúsund húfur seldust á tímabilinu og er virkilega ánægjulegt að sjá húfuna á kollum landsmanna hvar sem er í þjóðfélaginu hvort sem er á götum úti eða á samfélagsmiðlum. Fyrir hvern setur þú upp kolluna? B ls .8

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.