Kraftur - 2023, Blaðsíða 9

Kraftur - 2023, Blaðsíða 9
B ls. 9 Kraftur Kynntu þér málið nánar með því að taka mynd af QR kóðanum með snjallsíma. „Lífið er núna“ styrktartónleikar Samhliða átakinu skellti Kraftur sér hringinn í kringum landið og hélt styrktartónleika með flottu tónlistarfólki. „Tilgangur ferðalagsins var að minna fólk á að „Lífið er núna“ og muna að njóta líðandi stundar en einnig til að minna fólk á starfsemi Krafts og þá þjónustu sem félagið býður sínum félagsmönnum,“ sagði Þórunn. Tónleikar voru haldnir á Höfn, Neskaupstað, Akureyri, Reykjanesbæ og hringferðinni lauk svo á sjálfum baráttudegi gegn krabbameini, þann 4. febrúar, í Iðnó í Reykjavík. „Lífið er núna“ dagurinn Kraftur hélt í fyrsta sinn upp á „Lífið er núna“ daginn fimmtudaginn 9. febrúar og hvatti þá landsmenn alla til að skarta einhverju appelsínu- gulu, staldra við og njóta líðandi stundar með fólkinu í kringum sig. Fyrirtæki, skólar, félaga- samtök, vinir og vanda menn voru öll hvött til að taka höndum saman og njóta dagsins til hins ýtrasta. Fjölmargir tóku þátt í deginum og er ljóst að hann er svo sannarlega kominn til að vera og verður haldinn næst fimmtudaginn 8. febrúar 2024. Við viljum nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem tóku þátt í átakinu okkar á einn eða annan hátt. Með ykkar hjálp getum við hjálpað öðrum. B ls. 9 Grein - Laila Sæunn Pétursdóttir

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.