Kraftur - 2023, Blaðsíða 18
Blóðteymið í nýja meðferðarkjarnann
„Spítalinn sér fyrir sér að almennt efla dag- og
göngudeildarþjónustu enn frekar. Við viljum alltaf
að skjólstæðingar okkar geti verið meira heima og
jafnvel erum við að horfa á að geta veitt ákveðna
krabbameinsmeðferð í heimahúsi. Draumurinn
er þá að vera með eins konar sjúkrahústengda
heimaþjónustu, t.d. gefa ýmsa meðferð í heimahúsi.
Það væri þá fyrst og fremst til að auka lífsgæði
okkar skjólstæðinga auk þess að létta á álagi innan
sjúkrahússins.“
Varðandi það hvort það sama eigi við um 11EG
og dag- og göngudeildina, að ekki sé gert ráð fyrir
nýrri legudeild í nýja meðferðarkjarnanum segir
Signý Vala það enn dálítið óljóst.
„Eins og mér skilst, þá mun
að minnsta kosti blóðteymið
á legudeildinni flytja í nýja
meðferðarkjarnann, þegar hann
verður tilbúinn. Hvað varðar
krabbameinshlutann, er
framtíðin aðeins óljósari.“
Signý Vala segir að 11EG sé enn í uppbyggingar-
fasa og líkt og margar aðrar deildir á Landspítala,
og í rauninni líkt og öll sjúkrahús í heiminum, enn
að glíma við eftirköst Covid-faraldursins. Dagleg
starf semi deildarinnar sé þó að miklu leyti orðin
eins og starfsfólk og stjórn endur myndu helst
vilja sjá eftir sameiningu. Þetta taki allt tíma og
gæðamál séu í stöðugum umbótum.
„Margt gott en alltaf hægt að gera enn betur“
„Starfsfólk deildarinnar er frábært og vinnur af
mikilli elju og hugsjón. Við erum full bjartsýni og
samstaða að tryggja sjúklingum okkar sem besta
þjónustu,“ segir Signý Vala.
Sú sem tekur þetta viðtal getur vottað fyrir það að
á 11EG er frábært starfsfólk enda þurfti hún að
liggja inni á deildinni í um þrjár vikur síðastliðinn
vetur. Signý Vala segir að það sé auðvitað ekki eins
algengt að ungt fólk þurfi á innlögn að halda eins
og eldra fólk enda eru krabbamein algengari með
hækkandi aldri.
Helsta áskorunin að halda í sérhæfinguna á sameinaðri deild
„Þegar ungt fólk greinist til dæmis með
bráðahvítblæði þarf það að leggjast inn í allar
lyfjameðferðir. Einnig þegar um er að ræða mjög
sérhæfða meðferð sem af einhverjum ástæðum
ekki er hægt að gefa á dagdeild. Dæmi um slíkt er
háskammtalyfjameðferð með stofnfrumustuðningi.
Þá getur ungt fólk, eins og allir, líka lent í því að fá
sýkingar eftir meðferðir, þurft aðstoð vegna erfiðra
verkjavandamála svo eitthvað sé nefnt,“ segir Signý
Vala og bætir við í lokin:
„Það er mikilvægt að fólk viti að
við viljum geta veitt sem allra besta
þjónustu og því erum mjög þakklát
fyrir að fá ábendingar sem við
getum nýtt til úrbóta. Það er sem
betur fer margt gott en alltaf hægt
að gera enn betur. Sumt er á okkar
valdi en annað ekki.“
B
ls
.1
8
Kraftur