Kraftur - 2023, Blaðsíða 15

Kraftur - 2023, Blaðsíða 15
Grein Sorg og reiði vegna þess sem hefur verið tekið frá mér: Vinkona mín og valið um að eignast barn sem væri líffræðilega mitt. Bugun vegna alls þess sem þarf að gera – og er svo leiðinlegt: Mæta á spítalann, tala við lækna, taka lyf. Leiði vegna þess að hafa engan tilgang, vera ekki að vinna og eyða megninu af deginum heima – því þú ert þreytt, ónæmisbæld, veik eða leið – og kannski allt þetta í einu. Það er mjög auðvelt fyrir einhvern sem hefur ekki verið ung manneskja og greinst með krabbamein að segja þetta: „Reyndu að vera að jákvæð, trúa því að allt gangi vel. Bjartsýnin er allt, vonin er sterkasta vopnið.“ Og þegar þetta er sagt við þig hugsarðu kannski: „Já, einmitt. Það er auðvelt fyrir þig að segja þetta.“ Klisjurnar sem hjálpa Allt er þetta víst eðlilegt, og alls ekki óalgengt að fólk sem gengið hefur í gegnum krabbameins- meðferð mæti erfiðustu andlegu áskorununum þegar meðferðinni er lokið. Sem betur fer á ég góða að, er með frábæran sálfræðing og yndislegan iðjuþjálfa – og ótrúlegt en satt þá hjálpar margt sem er frekar klisjukennt. Eitt af því er klisjan um að viðhorfið skipti öllu máli. Að ef að þú reynir að vera með gott viðhorf (ef svo má að orði komast) til veikindanna, með- ferðar innar og aðstæðnanna sem þú ert í, þá verði allt miklu auðveldara. Staðreyndin er engu að síður sú að það hjálpar að vera bjartsýn, að vera vongóð. Það er alls ekki alltaf auðvelt að halda í bjartsýnina og vonina – og stundum einfaldlega ómögulegt – en ef þér tekst að sækja þessi vopn aftur eftir að hafa misst þau, mun það hjálpa miklu meira en þig grunar. Klisjan um jafningjastuðning er líka sönn: Það hjálpar ótrúlega mikið að hitta aðra í svipaðri stöðu og ég get eiginlega ekki mælt nógu mikið með því að leita til Krafts um leið og þú greinist. Það gerði ég og verð alltaf óendanlega þakklát fyrir allt sem félagið hefur gert fyrir mig og mína. Kraftur B ls. 15

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.